Sport

Richards-Ross fékk gull í 400 metra hlaupi kvenna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Richards-Ross, til hægri, kemur fyrst í mark í kvöld og tryggir Bandaríkjunum enn ein gullverðlaunin.
Richards-Ross, til hægri, kemur fyrst í mark í kvöld og tryggir Bandaríkjunum enn ein gullverðlaunin. Nordicphotos/Getty
Sanya Richards-Ross frá Bandaríkjunum sigraði í 400 metra hlaupi kvenna á Ólympíuleikunum í kvöld. Richard-Ross kom í mark á tímanum 49.55 sekúndum.

Bretinn Christine Ohuruogu, Ólympíumeistari frá því í Peking 2008, varð önnur á 49.70 sekúndum eftir ótrúlegan endasprett. Tíminn var hennar langbesti á árinu en hún hafði ekki þótt sannfærandi í undanrásum og undanúrslitum.

Deedee Trotter frá Bandaríkjunum nældi í bronsið á 49.72 sekúndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×