Íslenski boltinn

Ákvörðunin um að hætta í haust stendur óhögguð

Hjörtur Hjartarson skrifar
Mynd/Vilhelm
"Ég ákvað að taka þetta bara alla leið síðasta vetur. Ég hef æft mjög vel, byrjaði í fótbolta strax í nóvember, eitthvað sem ég hef ekki gert undanfarin ár. Og allavega hingað til hefur þetta gengið ágætlega", sagði Bjarki Bergmann Gunnlaugsson, leikmaður FH í viðtali í Boltanum á X-inu í morgun.

Óhætt er að fullyrða að frammistaða Bjarka í sumar, sem varð 39 ára í vor, hafi komið flestum á óvart. Bjarki hefur verið þjakaður af meiðslum undanfarin ár og var um tíma hættur knattspyrnuiðkun. Hann hefur hinsvegar verið heill heilsu í sumar, spilað nánast alla leiki FH og verið á meðal bestu manna liðsins.



"Ég hef einbeitt mér að því æfa einn undanfarin ár, þá aðallega lyftingar og hlaup. Ástæðan er einfaldlega sú að ég treysti hreinlega ekki líkamanum í meiri átök sem óneitanlega fylgja fótboltaæfingum. Það hefur ekki haft góð

áhrif á mig að æfa á gervigrasi og hlaupa úti. En fyrst maður var búinn að ákveða að hætta og vildi klára þetta með sem sæmd, var ekkert annað í stöðunni en að keyra á þetta."

"Síðan hefur þróunin í þjálfun breyst mikið undanfarin ár. Menn eru farnir að gera allt aðra hluti en í gamla dag. Allar þessar hnébeygjur og allt það kjaftæði er liðið undir lok. Ég hef fundið réttu formúluna þar sem æfingaálagið er akkúrat rétt fyrir mig."

Þrátt fyrir að vera í sínu besta formi í mörg ár ætlar Bjarki að standa við þá ákvörðun sína að leggja skóna endanlega á hilluna í haust. Draumurinn er að ljúka ferlinum með Íslandsmeistaratitli.

"Við erum með gott lið, góðan hóp og frábæran þjálfara. Það er allt til alls hérna í Hafnarfirði. En þó það takist ekki er yfirstandandi tímabil mitt síðasta. Ég er að flytja til Hollands í haust þar sem kærastan mín stundar nám. Þar mun ég starfa fyrir umboðsskrifstofuna mína, Total Football enda með marga leikmenn á okkar snærum á þessu svæði", sagði Bjarki Gunnlaugsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×