Eldur kom upp í bifreið sem keyrði aftan á aðra á Hringbrautinni rétt eftir klukkan tíu í kvöld. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu var enginn fluttur á slysadeild en ekki er vitað á þessari stundu hvers vegna eldur gaus upp. Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu á svæðinu, en Hringbrautinni var lokað um tíma. Fjöldi fólks var á staðnum að fylgjast með slökkviliðinu að ráða niðurlögum eldsins og þá var nokkuð um forvitna ökumenn sem stoppuðu og horfðu á slökkvistarf. Talið er að annar bíllinn sé gjörónýtur og hinn að minnsta kosti mikið skemmdur.

