Íslenski boltinn

Gísli: Orðfærið ekki við hæfi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gísli Gíslason.
Gísli Gíslason. Mynd/Heiða
Gísli Gíslason, stjórnarmaður í KSÍ, vildi lítið tjá sig um skrif Garðars Gunnlaugssonar á Facebook í gær.

Garðar gagnrýndi Hörð Magnússon, stjórnanda Pepsi-markanna, á Facebook-síðu sinni í gær en Gísli var einn þeirra sem setti nafn sitt við færsluna með því að „líka við" hana.

„Já, ég er sekur um það," sagði Gísli.

Sérðu eftir því í dag?

„Orðfærið var ekki við hæfi. En stundum skilur maður pirringinn þegar þessir drengir frá gagnrýni. Ekki hef ég meira um það að segja."

Í ljósi stöðu þinnar innan KSÍ - var þetta heppilegt?

„Með þessum orðum að orðfærið var ekki við hæfi. Enda hefur hann beðist afsökunar og ég like-aði það. Svo því sé til haga haldið."

„Meira hef ég ekki um málið að segja."


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×