Merkið sett til að auka öryggi Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. júlí 2012 11:59 Hér má sjá vegamerkinguna eins og hún blasti við fólki.
Mynd sem hefur gengið á Netinu og sýnir vegamerkingu á miðri akbraut á leiðinni til Þingvalla hefur vakið mikla furðu. Jafnvel hefur verið fullyrt að merkið kunni að valda árekstri. „Það sem þetta snýst um er sem sé að þarna er verið að setja upp svokallað þéttbýlishlið, en þau eru sett upp á þjóðvegum sem liggja í gegnum þéttbýli til að ná niður hraðanum," segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, í samtali við Vísi. Hann bendir á að hlið, sambærilegt þessu, sé á leiðinni inn að Laugarvatni. Ákveðið hafi verið að gera það sama við þjóðgarðinn á Þingvöllum þar sem hámarkshraði innan þjóðgarðsins er 50 km/klst Hraðinn sé tekinn úr 90 í 70 áður en komið er að þéttbýlishliðinu og svo tekinn niður í 50 km/klst við hliðið.Mynd sem sýnir hvernig svæðið á að vera.G. Pétur segir að á myndinni á netinu sjáist ekki stóru hliðskiltin sem sjáist á teikningu af svæðinu. „Hinsvegar var það handvömm að öryggissvæðið og aðrar yfirborðsmerkingar voru ekki málaðar um leið og eyjan var sett upp sem sést á myndinni," segir G. Pétur. Hann bætir því við að allt sé þetta gert í umferðaröryggisskyni, til að auðvelda ökumönnum að sjá að þeir eru að fara inn á svæði með lægri hámarkshraða og þannig reyna að halda hraðanum innan þjóðgarðsins við 50 km/klst eða minna. Vegurinn sé ekki hannaður fyrir meiri hraða en það.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira