Skrifar greinar fyrir vefsíðu Locarno Hugrún J. Halldórsdóttir skrifar 24. júlí 2012 13:04 Ari Gunnar Þorsteinsson.
Íslendingurinn Ari Gunnar Þorsteinsson hefur ásamt sjö öðrum verið valinn til að skrifa greinar fyrir vefsíðu Locarno kvikmyndahátíðarinnar, sem er ein sú virtasta í heimi. Hátíðin fer fram í Sviss dagana 1. til 11. ágúst og mun Ari Gunnar skrifa um kvikmyndirnar sem þar verða sýndar og taka viðtöl við gesti. Afraksturinn birtist síðan á heimasíðu hátíðarinnar Indiwire.com en síðan, hátíðin og samband kvikmyndagagnrýnenda í Sviss standa að þessu verkefni sem Ari Gunnar tekur þátt í. „Það voru 80 manns sem sóttu um og átta fengu pláss. Upprunarlega áttu þeir að vera sex en svo var tveimur bætt við þegar verkefnið fékk styrk frá ríkisstjórninni í Sviss," segir Ari Gunnar. „Þetta er alveg frábært tækifæri, þetta er líka ein elsta og virtastas kvikmyndahátíð í heiminum þannig að þetta er mjög spennandi allt saman," bætir hann við. Ari Gunnar leggur stund á mastersnám í kvikmyndafræði við Háskólann í Stokkhólmi. Hann segist vel geta hugsað sér að starfa á fleiri kvikmyndahátíðum í framtíðinni og jafnvel setjast í dómarasæti. „Það væri voða skemmtilegt. Það er litið á þetta sem stökkpall til að komast lengra og fá sambönd og fólk til að lesa það sem maður er að skrifa. Ég sé um kvikmyndahlaðvarp sem ég tek upp í Stokkhólmi, þar sem ég bý, ásamt vinkonu minni og við tökum upp þáttinn og setjum á netið. Hver sem er, hvar sem er getur hlaðið honum niður. Ég ætla einmitt að taka með mér upptökugræjurnar og taka upp þætti á kvikmyndahátíðinni þannig að það verður mjög skemmtilegt," bætir hann við. Áhugasamir geta fylgst með ferð Ara Gunnars og verkefnum hans á vefsíðunni moviehomework.com.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira