Getur ekki séð ósamræmi hjá Hæstarétti BBI skrifar 26. júlí 2012 13:41 Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst. Mynd/GVA
Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, getur ekki séð að Hæstiréttur sé ósamkvæmur sjálfum sér þegar hann ákveður að ógilda ekki forsetakosningarnar öfugt við stjórnlagaþingskosningarnar á sínum tíma. Ýmsir hafa orðið til að benda á ósamræmi í ákvörðunum Hæstaréttar frá því í gær, þar sem forsetakosningarnar voru ekki ógiltar, og ákvörðun réttarins þar sem stjórnlagaþingskosningarnar voru ógiltar. Þeirra á meðal eru Ragnar Aðalsteinsson og Þorvaldur Gylfason. Í ákvörðun gærdagsins tók rétturinn undir að ágalli hefði verið á kosningunum en þar sem hann hafði ekki áhrif á efnislega niðurstöðu þeirra gat hann ekki valdið ógildingu. Ekkert var minnst á þessa reglu þegar stjórnlagaþingskosningarnar voru ógiltar á sínum tíma vegna nokkurra ágalla. Bryndís var í landskjörstjórn á þeim tíma þegar stjórnlagaþingskosningarnar voru ógiltar. Hún var ein af þeim sem sögðu af sér í kjölfarið. Hún tekur fram að á sínum tíma hafi hún verið ósammála ákvörðun Hæstaréttar. Þrátt fyrir það finnst henni hæpið að halda því fram að rétturinn sé ósamkvæmur sjálfum sér. „Ef við bara horfum á þetta algerlega kalt. Annars vegar erum við með kosningu þar sem Hæstiréttur segir að almennum leynileika hafi verið áfátt og auðvelt að sjá hvað fólk kaus. Hins vegar erum við með kosningar þar sem fáeinir einstaklingar fengu að kjósa með hjálp aðstoðarmanna sinna. Í fyrra tilvikinu finnst mér augljóst að slíkir ágallar séu líklegri til að hafa áhrif á efnislega niðurstöðu kosninga en í síðara tilvikinu," segir Bryndís og getur því ekki séð ósamræmi í ákvörðunum Hæstaréttar. Margt við þessar tvennar kosningar sé ekki sambærilegt. Bryndís tekur fram að niðurstöður í málum sem þessum eru alltaf háðar mati. „Þess vegna er voðalega auðvelt að fara í þessar stellingar og rífa Hæstarétt niður fyrir þetta," segir hún og finnst alvarlegt fólk hlaupi að ályktunum að óathuguðu máli.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira