Færri rannsóknir með niðurskurði auka hættu á að sýkingar fari leynt Þorbjörn Þórðarson skrifar 10. júlí 2012 21:00
Nánast bein fylgni er á milli greininga á sýkingum með blóðræktun á smitsjúkdómadeild Landspítalans og niðurskurðar til spítalans. Þetta þýðir að hætt er við því að fjöldi fólks sé með sýkingar án þess að vita af þeim þar sem sýni voru aldrei send í ræktun. Niðurskurður á framlögum til Landspítalans nemur 25 prósentum á undanförnum fjórum árum. Á þessum tíma hafa stjórnendur og starfsfólk spítalans unnið þrekvirki við að halda þjónustu spítalans viðundandi. Þessi mikli niðurskurður hefur bitnað verulega á starfi spítalans. Formaður Læknafélagsins sagði í grein í Fréttablaðinu í gær að niðurskurðurinn væri farinn að ógna öryggi sjúklinga. Eðlilega hefur spítalinn þurft að sníða sér stakk eftir vexti. Eins og Björn Zoega, forstjóri spítalans, sagði í fréttum okkar í gær þá er þjónusta spítalans á eftir hinum Norðurlöndunum. Með öðrum orðum þá erum við Íslendingar eftirbátur þeirra ríkja sem við berum okkur saman við, þegar heilbrigðisþjónusta er annars vegar. Ein birtingarmynd niðurskurðarins er að rannsóknum með blóðræktun hefur fækkað, en það er þegar tekið er blóð og sent í ræktun. Magnús Gottfreðsson, sérfræðilæknir á smitsjúkdómadeild, segir að mjög sterk fylgni sé milli færri greininga og rannsókna og niðurskurðar. Magnús segir áhyggjuefni að þessi rannsókn sé gerð 20-25 prósent sjaldnar en hún var gerð áður og greiningum hafi fækkað jafn mikið. Það rímar nánast alveg við niðurskurðinn hjá spítalanum. Tvær skýringar eru á þessu að mati Magnúsar. Annars vegar að greiningum hafi hreinlega fækkað samhliða niðurskurði eða að sýkingar fari framhjá sérfræðingum spítalans og greinist seint eða aldrei. Sjá viðtal við Magnús í myndskeiði með frétt.
Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fleiri fréttir Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Sjá meira