Fréttum það í gegnum fjölmiðla að Gary væri á leiðinni til okkar 18. júlí 2012 14:45 Gary Martin. Guðmundur Bjarki Halldórsson
Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, segist fyrst hafa heyrt það frá fjölmiðlum að ÍA hefði samþykkt tilboð félagsins í Gary Martin og að leikmaðurinn væri við það að ganga til liðs við þá. Þetta kom fram í viðtali við formanninn í útvarpsþættinum Boltanum á X-inu í morgun. Kristinn reiknar með að heyra í forráðamönnum ÍA í dag og framhaldinu ræða við Gary Martin, væntanlega um kaup og kjör. "En allt fór þetta miklu hraðar í loftið en við reiknuðum með.En það er alveg klárt mál að við munum hafa samband við Skagamenn í dag", sagði Kristinn. Steven Lennon greindi frá því í sama þætti í morgun að Fram hefði hafnað tilboð KR í leikmanninn, eitthvað sem hann sjálfur var mjög ósáttur við. Aðspurður um hvor leikmaðurinn væri ofar á óskalista KR, Lennon eða Martin, sagði Kristinn það ekki vera venju hjá KR að tjá sig um þá leikmenn sem liðið sækist eftir. "Ég vil ekki ræða um þá leikmenn sem við gerum tilboð í né þau tilboð sem er hafnað. Menn verða bara að geta í eyðurnar. Ég get samt sagt að auðvitað er Steven Lennon frábær leikmaður en sem stendur erum við ekki með neitt í höndunum frá Frömurum að hann sé á leiðinni til okkar. Þannig er það bara og ekkert við það að bæta að svo stöddu, hvað svo sem síðar verður", sagði Kristinn. Sögusagnir hafa verið uppi um að einhverjir leikmenn gætu verið á leið frá KR í kjölfar kaupa félagsins á Lennon eða Martin. Kristinn sagði ekkert hæft í þeim orðrómi. "Það vilja allir vera í KR sem eru hjá okkur í dag og á meðan svo erum við ánægðir með að hafa þá. Við þurfum ekkert að losa úr hópnum þó við bætum í hann", sagði Kristinn að lokum en hann var staddur í Helsinki þar sem hann fylgdist með sínum mönnum tapa fyrir HJK Helsinki, 7-0 í gærkvöld.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira