Ólafur Guðmundsson genginn til liðs við Kristianstad Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. júní 2012 21:56 Ólafur varð Íslandsmeistari með FH árið 2011.
Handboltamaðurinn Ólafur Guðmundsson hefur samið við sænska úrvalsdeildarfélagið IFK Kristianstad. Ólafur kemur frá danska stórliðinu AG Kaupmannahöfn en hann var í láni hjá Nordsjælland á síðustu leiktíð. „Hann hefur með frammistöðu sinni með Nordsjælland sýnt að við höfðum rétt fyrir okkur um hæfileika hans. Samkeppnin hjá AGK er svo hörð að hann hefði ekki fengið nægan leiktíma til þess að blómstra," segir Sören Coldin íþróttastjóri AGK á heimasíðu félagsins. Ólafur hefur verið viðloðandi íslenska landsliðið í undanförnum verkefnum en gekkst undir uppskurð í apríl vegna axlarmeiðsla. Hann gat af þeim sökum ekki gefið kost á sér í leiki Íslands gegn Hollendingum í undankeppni heimsmeistaramótsins á dögunum. AGK hefur tryggt sér kaupréttinn á Ólafi sem félagið hyggst notfæra sér haldi hann áfram að taka framförum. „Við höfum metið það í sameiningu að best sé að leiðir skilji nú. Hann getur því búið sig undir meiri spiltíma og það verður ró yfir framtíð hans," sagði Colding. Hjá Kristianstad hittir Ólafur fyrir nafna sinn Ole Lindgren, varnartröll úr gullaldarliði Svía á 9. og 10. áratug síðustu aldar. Hjá AGK var Ólafur einmitt undir stjórn kollega Lindgren úr sænska landsliðinu, Magnusar Anderson. Ólafur hafði verið orðaður við sænska félagið um nokkuð skeið líkt og því má segja að tíðindin komi ekki á óvart.
Mest lesið Gunnlaugur Árni á U.S. Open Golf Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Íslenski boltinn Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Handbolti Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Fótbolti Fleiri fréttir Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Sjá meira