Sport

Hafþór Júlíus sá sterkasti þriðja árið í röð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Páll Logason, Ari Gunnarsson og Hafþór Júlíus kátir í Grindavík.
Páll Logason, Ari Gunnarsson og Hafþór Júlíus kátir í Grindavík. Mynd / Magnús Ver
Hafþór Júlíus Björnsson varð um helgina Sterkasti maður Íslands en keppt var í Grindavík. Níu keppendur skráðu sig til leiks en Hafþór hafði töluverða yfirburði og sigraði í sex keppnisgreinum af átta.

„Ég hef aldrei verið í betra formi og ég var ánægður með hvernig til tókst. Þetta er frábært mót hér í Grindavík, umgjörðin til fyrirmyndar og veðrið var auðvitað alveg með ólíkindum. Þetta er góður undirbúningur fyrir Evrópukraftamót sem ég fer í núna síðar í þessum mánuði," sagði Hafþór Júlíus sem er tveir metrar á hæð og 193 kg.

Í öðru sæti varð Ari Gunnarsson og í því þriðja Páll Logason. Keppt var í hefðbundnum kraftagreinum eins og t.d. bóndagöngu, sirkuslyftu, trukkadrætti, atlassteinatökum og svo nýrri sjómannagrein, bryggjupollaburði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×