Munu opna Boot Camp í Elliðaárdal Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. maí 2012 14:44 Rafstöðvarvegur, þar sem Boot Camp mun vera með starfsemi.
Eigendur Boot Camp munu geta opnað líkamsræktarstöð í Elliðaárdal í sumar. Þetta var ljóst þegar borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti breytingu á deiliskipulagi að Rafstöðvarvegi 9 og 9a á fundi sínum í gær. Vísir greindi frá því á dögunum að borgarfulltrúar VG legðust gegn starfsemi Boot Camp í Elliðaárdalnum af ýmsum ástæðum. „Ekki fer vel á því að koma fyrir á þessu svæði líkamsrækt með herbúðasniði, hávaða og yfirbragði sem því fylgir, bílastæðaþröng og mikilli umferð bíla. Finna þarf húsum á svæðinu heppilegra hlutverk í sátt við mannlíf, sögu og náttúrulegt umhverfi," sagði orðrétt í bókun sem Torfi Hjartarson, fulltrúi VG í skipulagsráði, lagði fram. Í bókun sem Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, lagði fram þegar breytingin var samþykkt á deiluskipulaginu var samþykkt í gær segir að borgarstjórn Reykjavíkur beri fyrst og fremst að standa vörð um umhverfi, lífríki og útivistarmöguleika í Elliðaárdal. Því sé óæskilegt að borgaryfirvöld stuðli með skipulagi að stóraukinni umferð um svæðið og ásókn í bílastæði. Hún telji afar óheppilegt að húsið hafi risið í upphafi, en úr því sem komið er hefði þurft að finna því lágstemmdara hlutverk án mikillar bílaumferðar.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira