Tvö lið af fjórum nýliðar Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Köln skrifar 26. maí 2012 09:00 Alexander Petersson verður í eldlínunni með Berlin í dag.
Füchse Berlin og AG frá Kaupmannahöfn eru bæði komin áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu en liðin eiga það sameiginlegt að vera á sínu fyrsta tímabili í keppni þeirra bestu. AG var sem kunnugt er stofnað af Jesper Nielsen árið 2010 en félagið varð Danmerkurmeistari á sínu fyrsta tímabili í fyrra og vann sér því þátttökurétt í Meistaradeildinni. Füchse Berlin, lið Dags Sigurðssonar, kom öllum að óvörum með því að ná þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar og tryggja þar með félaginu sæti í Meistaradeildinni í fyrsta sinn í sex ára sögu félagsins. Füchse Berlin mætir nýkrýndum Þýskalandsmeisturum Kiel í fyrri undanúrslitaleik dagsins í dag og AG mætir svo Atletico Madrid klukkan 16.00. Sigurvegarar leikjanna spila svo til úrslita á morgun en allir leikirnir fara fram í Köln í Þýskalandi. Iker Romero, leikstjórnandi Füchse Berlin, segir að gott gengi liðsins hafi komið mörgum á óvart. „Það er eins og að við séum á leið í partí sem enginn hélt að við værum boðnir í,“ sagði Romero við þýska fjölmiðla. Hann er þó þaulreyndur sjálfur og hefur spilað með Barcelona í úrslitahelgi Meistaradeildarinnar, Final Four, í öll þau þrjú skipti sem hún hefur farið fram. Romero vann titilinn með Barcelona í fyrra en AG gerði sér einmitt lítið fyrir og sló Börsunga úr leik í fjórðungsúrslitum keppninnar.
Mest lesið „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti „Ég má ekki segja leyndarmál“ Körfubolti Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn Ellefu mörk í Mosfellsbænum Íslenski boltinn „Einvígið fer ekki á einum manni“ Handbolti Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Fótbolti Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Handbolti Fékk sex leikja bann fyrir hómófóbíu en ekki rasisma Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistaradeild Evrópu Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Grétar lætur staðar numið í Skógarselinu Rændir í miðju lyfjaprófi Stjörnukonur jöfnuðu metin Ómar Ingi klikkaði í vítakeppni og Magdeburg úr leik í bikarnum Uppgjör: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu Valskonur einum sigri frá úrslitaeinvíginu eftir stórsigur Janus Daði klúðraði örlagavíti í undanúrslitum Viktor Gísli aftur með yfir fimmtíu prósent markvörslu Uppgjörið: Haukar-FH 35-36 | Nágrannarnir sendu Hauka í sumarfrí Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Gróttukonur sóttu dýrmætan sigur í Mýrina Einar Bragi frábær þegar Kristianstad tryggði sig í undanúrslit Guðjón Valur stýrði Gummersbach til sigurs í ellefta leiknum í röð Sjá meira