Las upp úr trúnaðarbréfi á Aþingi: Smekklaust en löglegt Valur Grettisson skrifar 11. maí 2012 11:26 Álfheiður Ingadóttir baðst afsökunar í dag. „
Þetta sýnir að sumir mega og aðrir ekki á þinginu," segir Vigdís Hauksdóttir sem er ósátt við framgöngu Álfheiðar Ingadóttur þingmanns Vg, sem las upp úr trúnaðarbréfi frá Björgu Evu Erlendsdóttur, stjórnarformanni RÚV, á Alþingi á föstudaginn í síðustu viku. Í bréfinu gagnrýndi Björg Eva framgöngu flokksbróður Vigdísar, Sigurð Inga Jóhannesson, þingmann Framsóknarflokksins, sem gagnrýndi Þórólf Matthíasson hagfræðiprófessor harðlega úr ræðustóli á í síðustu viku vegna gagnrýni hans á Bændasamtökin sem birtist á Vísi í síðustu viku. Álfheiður baðst afsökunar á því að hafa lesið bréfið úr ræðustóli á Alþingi í dag. Ástæðan var sú að bréfið var stílað á forsætisnefnd og þar hafði það ekki verið rætt efnislega. Álfheiður bætti svo við: „Þetta voru mistök." Vigdís gagnrýnir hinsvegar harðlega að sjálf hafi hún verið áminnt fyrir brot á þingskaparlögum eftir að hún birti færslu á Facebook um trúnaðarmál í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. „Ég kalla bara eftir jafnræði," segir Vigdís sem þykir framganga Álfheiðar klárt brot á þingsköpum, hún hafi lesið upp úr trúnaðargagni sem var sent á forsætisnefnd áður en það var tekið fyrir í nefndinni. Þá nafngreindi hún bréfritarann. „Þetta mál er bara algjörlega útí hött," bætir Vigdís svo við. Hún segir þetta sýna það og sanna hversu sterka stöðu ríkisstjórnarflokkarnir hafa til þess að beita valdi forseta Alþingis, „þarna kristallast átök innan þingsins," segir hún. Álfheiður svaraði þessu ásökunum úr ræðustól í dag. Þar sagði hún: „Þetta er smekklaust, en ekki brot á þingskaparlögum."
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira