Hefur efasemdir um stöðu lífeyrissjóða á lánamarkaði Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 11. maí 2012 19:45
Formaður viðskipta- og efnahagsnefndar segir það vekja efasemdir um stöðu lífeyrissjóðanna á neytendalánamarkaði að vera ekki tilbúnir til að koma til móts við fólk í skuldavanda. Ef þeir telji sig skorta lagaheimildir geti þeir leitað til þingsins. Tæplega fjögur þúsund skuldarar hafa fengið lánað veð hjá vinum eða ættingjum til að kaupa sér húsnæði. Um helmingur þeirra er með yfir 110 prósenta veðsetningu en lífeyrissjóðirnir hafa ekki viljað fella niður skuldir þessa hóps samkvæmt 110 prósenta leiðinni þar sem þeir segja þeim ekki vera heimilt að fella niður innheimtanlegar kröfur. „Við getum hjálpað þeim að greina mengið og finna hugsanlegar leiðir en það er alveg ljóst að þeir munu ekki koma að beinum greiðslum eða niðurfellingu á eignum," segir Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Aðspurð um hvort að sjóðirnir séu ekki reiðubúnir að taka á sig kostnað vegna breytinga á þessum skuldum segir Þórey: „Þetta snýst ekki um kostnað, þeir hafa ekki heimildirnar." Helgi Hjörvar formaður efnahags- og viðskiptanefndar segir þessa afstöðu vonbrigði. „Lífeyrissjóðirnir hafa gengið mun skemra í skuldaúrræðum gagnvart sínum lántakendum heldur en bæði bankar og íbúðalánasjóður," segir Helgi „Ef sjóðirnir telja að þá skorti lagaheimildir til að gera það sama og aðrir eru að gera, þá hljóta þeir að leita til okkar í þinginu til að breyta lögunum og ég er viss um að við myndum taka slíku erindi vel." „Mér finnst það vekja ákveðnar efasemdir um það hvort að sjóðirnir eigi erindi inn á neytendalánamarkað. Það að þeir séu ekki tilbúnir að gera það sama fyrir skuldara hjá sér og bankarnir og íbúðalánasjóður eru tilbúnir að gera. Þeir verða að vera tilbúnir til að koma til móts við fólk með svipuðum hætti og aðrir aðilar á þessum markaði ef að þeir ætla að vera á þessum markaði," segir Helgi.
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira