Tíu sótt um tíu störf sem auglýst voru á Suðurnesjum Höskuldur Kári Schram skrifar 14. maí 2012 21:15
Einungis tíu hafa sótt um tíu störf sem voru auglýst á Suðurnesjum í síðustu viku. Atvinnuleysi á svæðinu er það mesta á landinu en eigandi fyrirtækisins sem auglýsti undrast áhugaleysi Suðurnesjamanna. Fyrirtækið Icesware sem rekur meðal annars saumastofuna Víkurprjón auglýsti eftir tíu starfsmönnum í heilsíðu auglýsingu í Víkurfréttum í síðustu viku en fyrirtækið hyggst opna saumastofu á Suðurnesjum í næsta mánuði. Í dag voru tíu búnir að senda inn umsókn. Atvinnuleysi á Suðurnesjum mældist tólf komma tvö prósent í marsmánuði sem er það mesta á landinu en tæplega þrettán hundruð manns eru án vinnu á svæðinu. Eigandi Icesaware segist fyrirfram hafi búist mun fleiri umsóknum en rúmlega hundrað umsóknir bárust þegar fyrirtækið auglýsti eftir lagerstarfsmanni í Garðabæ fyrir skemmstu. „Ég reiknað með að þessu yrði tekið fegins hendi og það yrðu miklu fleiri umsóknir, ég auglýsti eftir lagerstarfsmanni hjá mér fyrir tveimur mánuðum síðan og það sóttu á annað hundrað um það starf og mér skilst að þarna sé sérstaklega mikið atvinnuleysi meðal kvenna og þetta er sérstaklega hentugt fyrir það, og sem sagt þetta kom mér mjög á óvart," segir Ágúst Þór Eiríksson, eigandi Icewear. Í auglýsingunni er sérstaklega tekið fram að atvinnulaust fólk hafi forgang. „Þetta er léttaiðnaður, vinna við að sauma og sníða, þetta er alls ekki erfitt starf að mínu mati," segir Ágúst Þór. Sæmilega borgað? „Ég ætla ekki að ræða laun í fjölmiðlum, en já við ætlum að borga töluvert betur en atvinnuleysisbætur, það er alveg á hreinu," segir Ágúst Þór. Við þetta má bæta að prjónakonur á Suðurnesjum hafa boðið Ágústi þór á fund til þess að kynna störfin sem eru í boði samkvæmt frétt Víkurfrétta.
Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Erlent Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Veður Fleiri fréttir Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Sjá meira