Óttast að þúsundir farfugla muni drepast í hretinu Jóhanna Margrét Gísladóttir. skrifar 14. maí 2012 20:00
Fuglafræðingur óttast að þúsundir farfugla muni drepast í vorhretinu sem gengur nú yfir landið. Hretið er það versta á sex ár. Hálka, skafrenningur og éljagangur eru orð sem við heyrum ekki oft um miðjan maí en það er sá veruleiki sem íbúar á norðanverðu landinu vöknuðu við í morgun. Óveður gekk yfir landið í gærkvöldi og höfðu björgunarsveitir og lögregla í nægu að snúast meðal annars vegna fjúkandi steinhnullunga á Austfjörðum. Á Ísafirði lágu flugsamgöngur niðri fram eftir degi í dag og bátar voru bundnir við bryggju. Þessir vösku strákar létu þó veðrið ekki aftra sér að fara út í fótbolta. Smáfuglarnir verða fyrir miklu raski í svona vorhreti, sérstaklega farfuglar sem eru nýkomnir til landsins frá heitari löndum. „Ef þessi hret eru hörð og löng eins og þetta virðist ætla að vera og þá drepast þessir fuglar sem eru hvað viðkvæmastir, fyrst og fremst þeir fuglar sem byggja á skordýrum," segir Ólafur Karl Níelssen fuglafræðingur. Hann segir hret sem þessi hafa komið undanfarin ár en ekki svona slæmt síðan árið 2006. „2006 var mjög slæmt , þetta virðist ætla að vera svipað og 2006 og þá drápust þeir í þúsundatali hér á norðausturlandi og svo var líka slæmt hret 2010 og 2011," segir Ólafur Karl. Samkvæmt upplýsingum frá veðurstofunni er versta veðrið gengið yfir. Áframverður þó kalt fram eftir vikunni og ekki búist við að snjó fari að leysa fyrren um helgina. Þá er að vona að sumarið fari að taka við eftir langan vetur.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira