Innlent

Stöðvuðu kannabisrækt í miðborginni

Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Kannabisræktun var stöðvuð á tveimur stöðum í miðborginni en þar var einnig lagt hald á lítilræði af marijúana og amfetamíni.

Húsráðendur, karlar á þrítugs- og fimmtugsaldri, hafa báðir áður komið við sögu hjá lögreglu í fíkniefnamálum. Kannabisefni voru líka haldlögð í tveimur öðrum málum í borginni en í þeim hafði lögreglan afskipti af þremur mönnum um tvítugt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×