Kattafár í Svarfaðardal veldur lambadauða Boði Logason skrifar 16. maí 2012 10:55 „Niðurstaðan liggur fyrir og það er staðfest að þetta er svokölluð Bogfrymlasótt, einfrumungur sem smitast frá villiköttum og í heyið sem ærnar éta,“ segir dýralæknir. myndin úr safni „
Þetta er auðvitað gríðarlegt tjón fyrir mig sem að öllum líkindum fæst ekki bætt," segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, bóndi á bænum Brautarhóli í Svarfaðardal. Á annað hundrað lömb hafa drepist eða fæðst andvana á bænum á síðustu mánuðum vegna einfrumungar sem borist hefur í fóður frá villiköttum sem leika lausum hala í sveitinni. Dýralæknir segir að fleiri bændur á svæðinu hafi lent í því sama. Um er að ræða svokallaða Bogfrymlasótt sem er nokkuð algeng í sveitum en hún er þó árstíðarbundin. Einfrumungurinn á upphaflega upptök sín í músum og fuglum en smitast þaðan í villiketti sem skíta í heyið sem kindurnar borða. Sigurður Bjarni segir að allan apríl hafi það komi fyrir að ær bæru dauðum eða ófullburða lömbum. „Þetta var mikið hérna áður fyrr en þetta hvarf eiginlega alveg eftir að það var farið að gera rúllur. Þá er ólíklegt að það komi köttur og skíti í heyið þegar heyið er í rúllum," segir Sigurður Bjarni. Ólafur Jónsson, héraðsdýralæknir á Akureyri, segir að tekin hafi verið sýni af bænum hjá Sigurður Bjarna og þau send í Háskólann að Keldum. „Niðurstaðan liggur fyrir og það er staðfest að þetta er svokölluð Bogfrymlasótt, einfrumungur sem smitast frá villiköttum og í heyið sem ærnar éta. Ærnar geta myndað ákveðið ónæmi gegn þessu en það hefur ekki náðst í þessu tilviki," segir hann. Fleiri bæir í Svarfaðardal hafa lent í því sama en þó ekki í sama mæli og Sigurður Bjarni á Brautarhóli. „Það eru líkur á að þetta sé á fleiri bæum í dalnum en við erum að skoða það nánar. Þetta er nátturlega mikið tjón fyrir bændurna. Við verðum að finna út hvernig er hægt að koma í veg fyrir þetta." „Við ætlum að setjast yfir þetta í lok sauðburðar og skoða hvernig þessi mál eru. Menn þurfa að vera mjög vakandi að útrýma villiköttum um leið og þeir verða varir við þá. Það þarf að gera ráðstafanir," segir Ólafur.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjá meira