Bjarni fundaði með utanríkisráðherra Breta Breki Logason skrifar 17. maí 2012 11:31 Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins.
William Hague utanríkisráðherra Bretlands segir það almennt sjónarmið ríkjanna innan Evrópusambandsins að færeyingar og íslendingar séu of stífir þegar kemur að samningaviðræðum um makríldeiluna svokölluðu. Þetta segir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sem fundaði með ráðherranum í London í gær. Þeir ræddu einnig evrukrísuna og stöðuna sem komin er upp vegna erfiðleika grikkja. Bjarni hitti Hague í utanríkisráðuneytinu í London í gær og segir hann að um mjög góðan fund hafi verið að ræða. „Ég vildi notað tækifærið og skýra sjónarmið okkar varðandi makríldeiluna. Einnig vildi ég koma því á framfæri að setji Evrópusambandið heimildir til refsiaðgerða brjóti það gegn skilmálum EES-samningsins og reglna Alþjóðaviðskiptastofnunar. Auk þess vildi ég ítreka það að sé vilji íslendinga að ná niðurstöðu í þessu máli og Evrópusambandið muni gera rangt með því að setja málið í þann hnút sem það gerir, gangi þeir lengra á þessari braut," segir Bjarni í samtali við fréttastofu. Bjarni segir ráðherrann hafa þakkað fyrir þessar útskýringar en hafi sagt að það væri almennt sjónarmið ríkjanna í Evrópusambandinu að Færeyingar og Íslendingar væru of stífir í viðræðunum. Þá fóru þeir Bjarni og Hague einnig yfir evrukrísuna og segir Bjarni augljóst að staðan sem upp er komin vegna erfiðleika grikkja sé að yfirtaka alla stjórnmálaumræðuna í evrópusambandslöndunum. „Seðlabanki Bretlands lýsti yfir í gær miklum áhyggjum á að krísan geti haft áhrif á breska efnahaginn og það mun geta ráðið mjög miklu um framtíð Evrópusambandssamstarfsins hvernig muni spilast úr evrúkrísunni á næstu mánuðum," segir Bjarni.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjá meira