Viðskipti innlent

Fjörkippur á fasteignamarkaði eftir rólegheit frá páskum

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu tók mikinn fjörkipp í síðustu viku eftir að rólegheit höfðu einkennt hann frá því um páskana.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni var 104. Til samanburðar hefur 89 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku síðustu þrjá mánuði.

Af þessum 104 samningum voru 76 samningar um eignir í fjölbýli, 22 samningar um sérbýli og 6 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Heildarveltan var 3,2 milljarðar króna og meðalupphæð á samning 30,7 milljónir króna. Heildarveltan á viku undanfarna þrjá mánuði hefur hinsvegar verið tæplega 2,8 milljarðar kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×