Óhefðbundnar lækningar: Lausnirnar verða bara brjálaðri 3. maí 2012 14:39 Óhefðbundnar lækningar. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint. „
Það er eins og fólk skorti stundum þau verkfæri hugans að spyrja gagnrýna spurninga um svona hluti og leita sér frekari upplýsinga," segir læknirinn Svanur Sigurbjörnsson, sem gagnrýnir umræðu um óhefðbundnar lækningar hér á landi. Sjálfur gagnrýndi hann umfjöllun Fréttatímans harðlega en þar var fjallað um konu sem náði sér eftir að hafa veikst af krabbameini, en fyrirsögn greinarinnar var: „Sigraðist á krabba án geisla og lyfja". Svanur bendir á að konan, sem rætt var við, hefði verið með æxli sem var fjarlægt með fleygskurði. Þá vakti einnig heimildarmynd sem var sýnd í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi mikla athygli, en þar var fjallað um óhefðbundnar lækningar á frekar ógagnrýnin hátt. Svanur segir mörg þeirra óhefðbundnu úrræða sem eru í boði einfaldlega kukl. „Því er haldið mikið á lofti að að læknisfræðin horfi ekki á manneskjuna í heild sinni við greiningar, en það er mikill misskilningur," segir Svanur og bætir við að svona lagað ali á ranghugmyndum um hefðbundnar lækningar. „Þannig kom það fram í viðtalinu í Fréttatímanum að konan talaði við læknamiðil, sem er miðill sem nær sambandi við framliðna lækna. Og þá spyr maður sig hvort látnir læknar séu eitthvað betri en þeir læknar sem eru á lífi," spyr Svanur sem bendir á að það vanti eitthvað upp á rökræna hugsun í þessum samhengi. Aðspurður um þá sem hafa sannarlega læknast af illvígum sjúkdómum á óútskýranlegan hátt svarar Svanur því til að þá sé oftast um að ræða einstaklinga sem eru með ónæmiskerfi sem hreinlega ræður við meinið. Það sé ekkert dularfullt við það, líkaminn sigrar stundum sjálfur sjúkdóminn. „En þegar það kemur að illkynja æxlum þá eru litlar líkur að slíkt gerist." Svanur bendir ennfremur á að það sé hægt að greina vísindi frá kukli, eins og hann kýs að kalla óhefðbundnar lækningar, með einfaldri aðferð. „Þannig verða aldrei til nein verkfæri út frá kuklinu ólíkt hefðbundnum vísindum," segir Svanur og bendir á að vísindin þróast áfram, ná að sanna fræðin virki, á meðan hugmyndafræði, til að mynda hómópatar og heilara, verður ávallt óáþreifanleg. „Það eina sem breytist er að lausnirnar verða bara brjálaðri," segir Svanur. Hann segir óhefðbundnar lækningar einfaldlega hlaupa úr einu yfir í annað, „en þetta eru alltaf svipuð þemu og snýst um orkustöðvar, einhverjar óljósar um hugmyndir um heildrænt mat á líkama og huga, og að eitthvað hjálpi ónæmiskerfinu. Oftast eru þetta bara lygi," segir Svanur og bætir við: „Svo grípur fólk þetta og ber eins og einhverskonar hugarvírus." Spurður hvort það sé um raunverulegan skaða að ræða, hvort slíkt geti ekki einfaldlega verið ágætt fyrir þá sem kjósa slíkar aðferðir frekar en hefðbundnar lækningar, svarar Svanur því til að sumt sé sakleysislegra en annað. „En svo má benda á Steve Jobs í þessu tilliti en það hefði verið hægt að bjarga honum. Hann var með æxli í brisi sem var hægt að skera í burtu en hann kaus óhefðbundnari lækningar. Hann brást of seint við og dó," segir Svanur og á þá við stofnanda og forstjóra Apple tölvufyrirtækisins sem lést rúmlega fimmtugur að aldri. Svanur bendir á að tilfellin séu mun fleiri. Þannig segir Svanur að óhefðbundnar lækningar séu í besta falli tíma- og peningasóun. Í því versta, hættulegt heilsu fólks.
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira