Stakk af frá lögreglu og tilkynnti bílinn stolinn skömmu síðar 4. maí 2012 20:30
Lögreglan þarf oft að takast á við furðulega einstaklinga í samfélaginu. Þannig lýsir lögreglan viðskiptum sínum við einn með eftirfarandi hætti: Eitt af verkefnum lögreglu er að hafa afskipti af ökumönnum sem tala í síma í umferðinni án þess að notast við handfrjálsan búnað. Mál af þessu tagi eru iðulega afgreidd á vettvangi fljótt og vel og síðan halda ökumennirnir áfram för sinni, búnir að leggja frá sér símann og einbeita sér að akstrinum. Karl á þrítugsaldri var einmitt stöðvaður í umferðinni fyrir þessar sakir á dögunum en viðbrögð hans voru með óvenjulegasta móti. Maðurinn mátti ekkert vera að bíða eftir því að lögreglan afgreiddi málið á vettvangi og því tók hann á rás og hljóp eins og byssubrenndur út buskann. Sjálfsagt hefur hann slegið persónulegt hraðamet í þessu hlaupi án þess þó að um það sé hægt að fullyrða. Lögreglumönnunum á vettvangi þótti uppátækið heldur undarlegt enda maðurinn ekki grunaður um ölvunar- og/eða fíkniefnaakstur né mældist bíllinn hans á of miklum hraða. Reyndar voru ökuréttindin útrunnin en það kallar sjaldnast á viðbrögð af þessu tagi. Ekki var lagt í mikla leit að manninum enda talið víst að hann myndi sjá að sér. Sú varð líka raunin og eftir drjúga stund mætti viðkomandi á lögreglustöð til að gera hreint fyrir sínum dyrum, eða svo var haldið. Spurður um athæfið kannaðist maðurinn bara ekkert við það en sagðist hins vegar vera kominn á lögreglustöð til að kæra þjófnað á bílnum. Sjálfur hefði hann ekki verið undir stýri og þaðan af síður talandi í símann í akstri. Lygasaga mannsins var svona rétt sæmileg æfð en hann gleymdi hins vegar alveg að gera ráð fyrir þeim möguleika að lögreglan ætti hljóð- og myndupptöku af „símtalinu" og upphafi „hlaupsins". Eftir að sú staðreynd varð manninum ljós lét hann af leikaraskapnum og viðurkenndi strax allan þátt sinn í málinu. Við þetta má bæta að undanfarna daga hefur lögreglan stöðvað marga aðra ökumenn sem voru að tala í síma án þess að notast við handfrjálsan búnað. Enginn þeirra sá ástæðu til að yfirgefa vettvang svona skyndilega.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira