Ámælisvert hjá stjórnmálaflokkum á þingi að skila upplýsingum of seint 8. maí 2012 14:25
Sveinn Arason ríkisendurskoðandi telur það ámælisvert að stjórnmálahreyfingar skili ekki upplýsingum um fjármál innan settra tímafresta. Þannig skiluðu þrír stjórnmálaflokkar á Alþingi upplýsingum um fjármál flokkanna of seint, eða eftir 1. október 2011. Það voru Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkur. Aðrir flokkar og stjórnmálaöfl sem skiluðu upplýsingum of seint voru Besti flokkurinn, Samtök fullveldissinna og Íslandshreyfingin. Í inngangi sem Sveinn skrifar í ársskýrslu Ríkisendurskoðunar, segir hann að það komi ítrekað fyrir að flokkar skili upplýsingum of seint. „Ég tel ámælisvert að flokkar sem eiga fulltrúa á Alþingi skuli ekki virða þau tímamörk sem þingið hefur sjálft sett þeim með lögum," segir Sveinn í ávarpi sínu. Meðal lögbundinna verkefna Ríkisendurskoðunar er eftirlit með fjármálum stjórnmálasamtaka og frambjóðenda. Þessum aðilum ber samkvæmt lögum skylda til að skila fjárhagsupplýsingum til stofnunarinnar innan settra tímafresta. Frestur stjórnmálasamtaka til að skila ársreikningum sínum er lögbundinn og miðast við 1. október ár hvert en Ríkisendurskoðun setur tímafresti þegar um er að ræða upplýsingar um kostnað frambjóðenda af kosningabaráttu.
Mest lesið Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Innlent „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Innlent Gary Busey dæmdur fyrir kynferðisbrot Erlent Íslendingur grunaður um morð í Svíþjóð Erlent Ísland rampar upp Úkraínu Innlent Drógu vélarvana togara í land Innlent Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Innlent Rannsaka hvort maðurinn hafi haft samræði við ungan drenginn Innlent Karlmaður á fertugsaldri fannst látinn í Hafnarfirði Innlent Stefán Einar greiðir fyrir umdeilda boli Innlent Fleiri fréttir Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Ísland rampar upp Úkraínu Drógu vélarvana togara í land „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Leiðinlegt að óprúttnir aðilar skemmi fyrir heyrnarlausum Gervigreindarvélmenni mætt til starfa til að flokka rusl Segir lítið til í orðum ráðherra Gengur laus grunaður um barnaníð og meintar rangfærslur ráðherra Alvarlega slasaður eftir vélsleðaslys á Langjökli Stefán Einar greiðir fyrir umdeilda boli Breytingar á framhaldsskólastigi: „Við erum að reyna átta okkur á þessu“ Rannsaka hvort maðurinn hafi haft samræði við ungan drenginn Karlmaður á fertugsaldri fannst látinn í Hafnarfirði Lýsa yfir fullum stuðningi við stjórnendur Sólheima Vill að „guð“ taki á þeim sem vilja ekki fækka sveitarstjórnarmönnum Býður Sólveigu á fundinn og kannast ekkert við Virðingu Töldu ekki skilyrði fyrir varðhaldi yfir grunuðum barnaníðingi Kjarasamningur í höfn og atkvæðagreiðslu um verkfall aflýst Fara yfir gögnin en úttekt Viðskiptaráðs sé „skoðun hagsmunaaðila“ Sauð upp úr hjá förðunarmeistara og fegurðardrottningu Hvetja ráðherra til að mæta ekki á fund veitingamanna Bátar sviptir haffærisskírteini og Kourani sækir um náðun Lögreglan leitar manns Á annað hundrað báta óhaffærir vegna ófullnægjandi skoðunar Kourani sótti um náðun af heilbrigðisástæðum Efnisneysla á Íslandi dregst saman en nemur yfir sextán tonnum á mann Um tvö hundruð á ári á gjörgæslu vegna lífshættulegrar sýkingar „Það er erfitt að berjast fyrir eigin réttindum þegar maður er veikur“ Fór inn á heimili, klæddi sig úr fötunum og sofnaði í stól Sjá meira