Innlent

Stuðningur vegna Ólympíuleika aukinn um 15 milljónir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur Sigfússon oddvitar ríkisstjórnarinnar.
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur Sigfússon oddvitar ríkisstjórnarinnar.
Á fundi ríkisstjórnar Íslands á Egilsstöðum í dag var samþykkt að auka stuðning ríkisins við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands vegna undirbúnings og þáttöku íslenskra íþróttamanna á Ólympíuleikunum í London um 15 milljónir króna.

Gert er ráð fyrir að 29 íþróttamenn taki þátt í leikunum fyrir Íslands hönd í sex íþróttagreinum. Við þennan hóp bætast fararstjórar, flokksstjórar, þjálfarar, læknar, sjúkra­þjálfarar og annað fagteymi sem samtals verða um 26 manns. Heildarkostnaður ÍSÍ er áætlaður um 100 milljónir króna og verður hann að mestu greiddar úr Afrekssjóði ÍSÍ auk þess sem ýmis sérsambönd innan íþróttahreyfingarinnar hafa veitt fjármagn til verkefnisins.

Í fjárlögum ársins 2012 er stuðningur ríkissjóðs við ÍSÍ og sérsambanda innan þess 156 milljónir króna og er því um 10% hækkun á heildarframlögum. Með samþykkt fjárlaga ársins 2012 voru framlög ríkisins til Afrekssjóðs ÍSÍ hækkuð um 40%, úr 24,7 milljónum króna í 34,7 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×