Fjöldi einstæðra foreldra í vanda Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 8. maí 2012 18:30
Hátt í fimmtungur einstæðra foreldra var í alvarlegum vanskilum um síðustu mánaðarmót. Einstæðir foreldrar eru um helmingur þeirra sem þiggja mataraðstoð frá Hjálparstarfi kirkjunnar. Rúmlega tuttugu og sex þúsund manns voru í alvarlegum vanskilum í byrjun mánaðarins. Þetta sýna upplýsingar sem fyrirtækið Creditinfo hefur tekið saman. Meirihlutinn er karlmenn og flestir frá 30 til 50 ára. Þá sést einnig að hlutfall einstæðra foreldra sem voru í alvarlegum vanskilum er hærra en annarra. Þannig var um 18% einstæðra feðra í alvarlegum vanskilum og 17% einstæðra mæðra. Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar segir marga einstæða foreldra vera í erfiðri stöðu. Einstæðum foreldrum sem leitað hafi eftir aðstoð hjá þeim hafi fjölgað undanfarin ár. Í dag séu yfir 50% þeirra sem leita eftir aðstoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar einstæðir foreldrar. Vilborg segir marga foreldra hafa lítið á milli handanna eftir að hafa greitt reikningana sína og ekki geta lifað af því. Þannig eigi fjölskyldur oft ekki nema 50 til 60 þúsund þegar búið er að borga öll föst útgjöld eins og húsnæði og leikskólagjöld. Þá segir hún marga búna að nýta sér öll úrræði eins og að taka út séreignarsparnað. „Það eru mjög margir einstæðir foreldrar í erfiðri stöðu og það er alveg greinilegt að þetta er sá hópur sem er tekjulægstur og það þarf einhver úrræði sem beinast að þessum hóp".
Mest lesið Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Erlent Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Innlent Hélt á lokuðu umslagi Innlent Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu Innlent Sleginn í andlitið með hnúajárni Innlent „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Innlent Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Fleiri fréttir Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Sjá meira