Ljónin hans Guðmundar úr leik í EHF-bikarnum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. apríl 2012 21:19 Guðmundur og félagar geta farið að einbeita sér að deildinni þar sem liðið situr í 5. sæti. Nordic Photos / Getty
Rhein-Neckar Löwen tapaði í kvöld með fjórum mörkum í síðari undanúrslitaviðureign sinni gegn Göppingen í EHF-bikarnum. Löwen er úr leik eftir eins marks sigur í fyrri leiknum. Heimamenn í Göppingen höfðu frumkvæðið í leiknum frá upphafi til enda. Liðið komst yfir 9-3 eftir tólf mínútna leik og leiddi í hálfleik 16-13. Ljónin mættu ákveðin til leiks í síðari hálfleik og minnkuðu muninn í eitt mark 16-15 en þá skildu leiðir. Göppingen náði mest sex marka forystu og vann öruggan fjögurra marka sigur 33-29. Tékkinn Pavel Horák skoraði tíu mörk fyrir Göppingen en Michael Müller sjö fyrir gestina. Róbert Gunnarsson komst ekki á blað hjá Löwen. Göppingen, sem á titil að verja í keppninni, mætir annaðhvort Björgvini Páli Gústavssyni og félögum í Magdeburg eða franska liðinu Dunkerque í úrslitum. Liðin mætast í síðari viðureign sinni í Frakklandi á sunnudag. Það verður við rammann reip að draga hjá Björgvini Páli og félögum en franska liðið vann fyrri leikinn í Þýskalandi með fimm marka mun.
Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Enski boltinn Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Sjá meira