Viðskipti innlent

Gengi bréfa í Icelandair og Högum hækkar enn

Gengi bréfa í Icelandair og Högum halda áfram að hækka, en við lok viðskipta í dag hafði gengi bréfa Icelandair hækkað um 0,65 prósent og stóð í 6,17. Gengi bréfa í Högum hafði hækkað um 0,8 prósent og stóð í 18,8.

Icelandair var endurskráð, eftir endurskipulagningu, á genginu 2,5 en Hagar voru skráðir á markað á genginu 13,5. Ávöxtunin á fjárfestingu í bréfum þessara félaga, frá því þau voru skráð á markað, hefur því verið góð.

Gengi bréfa í Marel hefur hækkað um 0,68 prósent í dag og er nú 147. Gengi bréfa í Össuri hefur lækkað um 0,74 prósent í dag og er nú 202.

Sjá má ítarlegar upplýsingar um gengi á markaði hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×