Sport

Ivan Ljubicic leggur tennisspaðann á hilluna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ivan Ljubicic átti erfitt með tilfinningar sínar um helgina.
Ivan Ljubicic átti erfitt með tilfinningar sínar um helgina. Mynd. / Getty Images
Króatinn Ivan Ljubicic hefur ákveðið að leggja tennisspaðann á hilluna en hans síðasta mót var í Monte Carlo um helgina.

Ljubicic þurfti að lúta í gras fyrir landa sínum Ivan Dodig 6-0 og 6-3 og kvaddi þar með Tennis. Þessi 33 ára tenniskappi átti nokkuð farsælan feril en þrálát meiðsli bundu enda á ferilinn.

„Ég átti í basli allan leikinn og þetta voru sanngjörn úrslit," Ljubicic í tilfinningaþrungnu viðtal eftir leikinn.

„Hugur minn var allt annarsstaðar en á tennisvellinum í dag, það er erfitt að horfast í augu við að ferillinn sé á enda."

„Ég var búinn að undirbúa mig fyrir tilfinningaþrungna stund í dag en þetta var mun erfiðara en ég bjóst við."

„Ég hef stundað tennis í tuttugu ár en núna er tímabært að gera eitthvað annað."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×