Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Sviss 31:16 Stefán Hirst Friðriksson í Vodafone-höllinni skrifar 24. mars 2012 22:06 Arna Sif skorar af línunni. Mynd /Stefán
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik vann mikilvægan sigur á Sviss í undankeppni Evrópumótsins í Vodafone-höllinni í dag. Eftir jafnar upphafsmínútur stungu íslensku stelpurnar af og unnu stórsigur 31-16. Leikurinn fór hægt af stað og var nokkuð jafnræði með liðunum á upphafsmínútunum. Íslensku stelpurnar voru að spila óvenju illa í upphafi leiks og var það aðallega Guðný Jenný Ásmundsdóttir, markvörður liðsins, sem var að standa fyrir sínu. Það var ekki fyrr en um miðjan hálfleikinn sem stelpurnar sýndu svo loks sitt rétta andlit. Dagný Skúladóttir kom þeim í þriggja marka forystu, 6-3 þegar hálfleikurinn var rúmlega hálfnaður. Á þessum tímapunkti small vörnin í liðinu og svissneska liðið komst lítið áleiðis gegn henni. Íslendingar héldu áfram að bæta við forskot sitt og voru þær komnar með sjö marka forystu þegar tvær mínútur voru eftir af hálfleiknum. Svissneska liðinu tókst að skora síðasta mark hálfleiksins og staðan því 15-9, Íslendingum í hag í hálfleik. Síðari hálfleikurinn fór af stað eins og sá fyrri endaði og voru íslensku stelpurnar með öll völd á vellinum. Þær voru komnar í tólf marka forystu, 23-11 þegar seinni hálfleikurinn var hálfnaður. Svissnesku stúlkurnar svöruðu lítillega fyrir sig á næstu mínútum en Íslendingar voru ekki lengi að taka fulla stjórn á leiknum aftur. Lokamínúturnar voru þægilegar fyrir okkar stelpur sem héldu uppi góðri vörn og skoruðu hvert hraðaupphlaupsmarkið á fætur öðru. Auðveldur fimmtán marka sigur, 31-16 því staðreynd. Íslenska liðið hefur oft spilað betur og voru þær nokkuð lengi í gang í leiknum. Gæði svissneska liðsins eru lítil og var þetta í rauninni algjör skyldusigur. Markvarslan var fín í leiknum ásamt þvi að vörn íslenska liðsins hélt vel og sköpuðust mörg hraðaupphlaupsmörk í kjölfarið af henni. Stella Sigurðardóttir og Karen Knútsdóttir fóru fyrir stelpunum í sóknarleiknum en það komu alls mörk frá þrettán mismunandi leikmönnum liðsins í leiknum. Íslensku stelpurnar þurfa nú að vinna síðustu tvo leiki sína í riðlinum til þess að eiga möguleika á að komast í lokakeppnina.Ágúst Jóhannsson: Ekki oft sem við vinnum fimmtán marka sigur „Þetta var góður sigur hérna í dag. Það er ekki á hverjum degi sem við vinnum fimmtán marka sigur þannig að ég er að sjálfsögðu ánægður með það. Eg var virkilega ánægður með vörnina og markvörsluna í leiknum. Við vorum að gera aðeins of mikið af mistökum í fyrri hálfleiknum en það lagaðist í þeim seinni og unnum við að lokum örrugan sigur," sagði Ágúst. „Það eru núna tveir mánuðir í næsta leik þegar við fáum Spánverja heim í höllina. Það verður virkilega erfitt en ef við ætlum okkur að komast í lokakeppnina verðum við að klára þann leik," bætti Ágúst Jóhannsson, landsliðsþjálfari við í leikslok.Stella Sigurðardóttir: Stefnan sett á stórmót „Við vorum lengi í gang í dag. Fyrstu fimmtán mínúturnar voru svolítið erfiðar en þetta hafðist að lokum og unnum við glæsilegan sigur. Vörnin var virkilega góð í leiknum og erum við bara sáttar við þennan leik," sagði Stella. „Við höfum farið núna á tvö stórmót í röð og að sjálfsögðu stefnan sett á að komast upp úr þessum riðli. Við erum orðnar það góðar að við ætlum að sýna fólki að við séum komnar til að vera á þessum stórmótum. Við eigum tvö sterk lið eftir en við höfum trú á okkur." sagði Stella Sigurðardóttir, leikmaður Íslands í lok leiks.
Mest lesið Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira