Kynjaskipt svefnpokapláss á Þjóðhátíð Erla Hlynsdóttir skrifar 27. mars 2012 12:18
Þjóðhátíðarnefnd Vestmannaeyja keypti í morgun hluta af miðunum sem seldir verða með Herjólfi í kring um hátíðina. Ekki fæst uppgefið hversu stóran hluta nefndin keypti. Í ár verður í fyrsta sinn boðið upp á vaktað kynjaskipt svefnrými innahúss á Þjóðhátíð. Byrjað var í morgun að selja miðana. „Við keyptum hluta af miðunum til að setja í sölu með miðum í Herjólfsdal," segir Páll Scheving Ingvarsson, formaður þjóðhátíðarnefndar. Hann vill ekki gefa upp um hversu stórt hlutfall mðanna er að ræða. „Við viljum nú kannski ekki gefa það upp. Ég held að það sé misjafnt eftir ferðum," segir Páll. Miðarnir sem nefndin keypti eru í ferðir á fimmtudag og föstudag fyrir þjóðhátíðarhelgina, og svo á mánudag og þriðjudag. Þetta er í fyrsta skipti sem nefndin kaupir miða með Herjólfi. Páll segir að aðrir hafi þó áður selt saman miða í Herjólf og í Herjólfsdal. Ástæðuna fyrir kaupunum segir Páll vera til að fá betri yfirsýn yfir gestafjölda, og til að nýta ferðir Herjólfs til fulls. Oft hafi miðar með Herjólfi hreinlega selst upp á tveimur dögum þegar byrjað er að selja miðana í marsmánuði. „En síðan er fólk ekki alltaf að nýta farmiðana og er þá um leið í raun að „blokkera" aðgang annarra á sama tíma," segir Páll. Hann tekur fram að nefndinn hafi keypt miðana fullu verði, og þeir verði seldir áfram fyrir sömu upphæð, jafnvel í pakka þar sem einnig er boðið upp á gistingu. „Við ætlum að bjóða upp á nýja gistimöguleika. Við ætlum að tjalda inni í nýja knattspyrnuhúsinu og leigja þar gistingu, undir þaki, í skjóli, í vöktuðu húsnæði. Við munum líka bjóða upp á kynjaskipta gistingu í íþróttasölum þar sem verður vöktun líka, þar sem stelpur verða sér og strákar verða sér í svefnpokaplássum." Eftir síðustu Þjóðhátið var mikil umræða um þær nauðganir sem áttu sér stað á hátíðinni. Er þess aukna gæsla og kynjaskipting viðbrögð við þeim? „Kannski ekki bein viðbrögð. Við teljum þetta bara vera vinkil á því að geta betur tryggt öryggi," segir Páll.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira