AG bikarmeistari annað árið í röð | 16 íslensk mörk í úrslitaleiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2012 16:36 Guðjón Valur Sigurðsson skoraði átta mörk í úrslitaleiknum. Mynd/Heimasíða AG
AG bikarmeistari varð í dag danskur bikarmeistari í handbolta eftir öruggan sex marka sigur á Aalborg, 32-26, í úrslitaleiknum. AG vann bikarinn líka í fyrra og hefur nú unnið fjóra titla í röð í dönskum handbolta. Mikkel Hansen fór á kostum með AG og skoraði níu mörk þar af sex þeirra í seinni hálfleik. Guðjón Valur Sigurðsson var næstmarkahæstur með átta mörk og Ólafur Stefánsson skoraði fimm mörk þar af fjögur þeirra á upphafskafla leiksins. Alls voru sextán marka AG-liðsins (50 prósent) íslensk því fyrirliðinn Arnór Atlason skoraði þrjú mörk. Snorri Steinn Guðjónsson komst ekki á blað í leiknum. AG-liðið byrjaði leikinn af miklum krafti með Ólaf Stefánsson í fararbroddi. Ólafur skoraði fjögur af fyrstu sjö mörkum liðsins og AG komst í 2-0, 4-2 og 7-5. Guðjón Valur Sigurðsson hrökk í gang í seinni hluta fyrri hálfleiksins og skoraði þrjú mörk á stuttum tíma þegar AG breytti stöðunni úr 10-8 í 14-9. Arnór Atlason skoraði síðan lokamark fyrri hálfleiksins en AG var 15-11 yfir í hálfleik. Íslensku strákarnir höfðu skorað 9 af mörkum liðsins fyrir hlé. Mikkel Hansen skoraði fyrsta mark seinni hálfleiksins en Álaborgarliðið svaraði með því að skora fjögur mörk i röð og minnka munin í eitt mark, 16-15. Álaborgarliðið réð ekkert við Mikkel í seinni hálfleiknum og var danski Evrópumeistarinn búinn að skora sex mörk í hálfleiknum þegar hann var hálfnaður. AG breytti stöðunni úr 18-17 í 26-18 og eftir það var sigurinn aldrei í hættu.
Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Sjá meira