Frakkar fara stigalausir inn í milliriðilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. janúar 2012 20:52 Mynd/AFP
Heims-, Evrópu- og Ólympíumeistarar Frakka fara stigalausir inn í milliriðla á EM í handbolta í Serbíu eftir þriggja marka tap á móti Ungverjum, 23-26, í lokaleik riðlakeppninnar í kvöld. Ungverjar hafa komið mjög á óvart á þessu móti en þeir töpuðu ekki leik í riðlinum og fara með þrjú stig í milliriðilinn alveg eins og Spánverjar. Frakkar unnu bara Rússa í riðlinum en töp á móti Spáni og Ungverjum þýða að það verður afar erfitt fyrir franska liðið að spila um verðlaun á þessu móti. Liðið hefur unnið gull á fjórum síðustu stórmótum. Szabolcs Zubai skoraði 6 mörk fyrir Ungverja og Gergely Harsányi var með fjögur mörk en besti maður liðsins var markvörðurinn Nándor Fazekas sem varði 21 skot í leiknum. Xavier Barachet var markahæstur Frakka með 5 mörk. Frakkar skoruðu þrjú fyrstu mörk leiksins en Ungverjar létu það ekki á sig fá og unnu sig strax inn í leikinn. Ungverjar jöfnuðu metin í 4-4 og komust síðan tveimur mörkum yfir í tvígang, 8-6 og 9-7. Frakkar skoruðu þá fimm mörk í röð og komust í 12-9. Franska liðið náði samt ekki að losa sig við Rússa var bara tveimur mörkum yfir í hálfleik, 14-12. Ungverjar skoruðu fyrsta mark seinni hálfleiks og minnkuðu muninn í eitt mark en það tók Frakka rétt tæpar fimm mínútur að skora í seinni hálfleiknum. Frakkar náðu reyndar aftur þriggja marka mun, 16-13, en Ungverjar jöfnuðu metin í 16-16 og náðu síðan tveggja marka forskoti, 22-20, þegar níu mínútur voru eftir. Ungverjar gáfu þetta forskot ekki frá sér og unnu að lokum frábæran þriggja marka sigur.
Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Sjá meira