Guðjón Valur: Komum okkur í þessa stöðu sjálfir Henry Birgir Gunnarsson í Vrsac skrifar 21. janúar 2012 09:00 Guðjón Valur Sigurðsson. Mynd/Vilhelm „
Ég ætla að reyna að vanda orðavalið núna því ég vandaði það ekki í sjónvarpinu áðan," sagði Guðjón Valur Sigurðsson landsliðsfyrirliði eftir tapið gegn Slóveníu í gær. Það sauð á fyrirliðanum og skal engan undra miðað við frammistöðu liðsins. „Mér er andskotans drullusama hvað við klúðrum af færum en ef við skorum 32 mörk þá skal það gjöra svo vel og duga til sigurs. Þetta fer að verða komið nóg. Það er orðið erfitt að kyngja því hvernig við missum menn í vörninni og fáum litla markvörslu," segir Guðjón en fá teikn voru á lofti fyrir mót um að varnarleikurinn yrði í ólagi. „Mánuðurinn byrjaði vel í Danmörku á æfingamóti og þar var vörnin góð. Það er eitthvað óöryggi. Ég myndi aldrei saka nokkurn mann í þessu liði um að vilja ekki leggja sig fram. Það er einhver vírus kominn í menn sem gerir það að verkum að þeir eru óöruggir. Það vantar síðasta skrefið hjá okkur." Íslenska liðið fer án stiga í milliriðilinn og það er öllu liðinu mikil vonbrigði. „Svona er veruleikinn og lífið er stundum tík. Þetta er staða sem við komum okkur sjálfir í. Nú verðum við bara að taka þessari niðurstöðu af karlmennsku og gera það besta úr þeirri stöðu sem upp er komin. Það eru stórir hlutir framundan á þessu ári og nú verðum við að byrja að undirbúa okkur fyrir það. Það er samt ekkert búið og við ætlum að selja okkur dýrt í milliriðlinum. Vonandi náum við smá stíganda í okkar leik."
Mest lesið Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Körfubolti NFL goðsögn féll frá um helgina Sport Leikmannasamtökin fengu ekki að mæta á fund um velferð leikmanna Fótbolti Chelsea pakkaði PSG saman Fótbolti Heimir: „Svo höfum við skitið í deigið“ Fótbolti Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Enski boltinn Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni Íslenski boltinn Sævar Atli skoraði er Brann vann toppslaginn Fótbolti Leik lokið: England - Wales 6-1 | England flaug áfram Fótbolti Marcus Rashford neitar tilboði frá Sádí-Arabíu Sport Fleiri fréttir Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Tæplega þriggja áratuga ferli Alexanders lokið Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Færeyingar efstir þrátt fyrir sigur Íslands í síðasta leik Sautján mörk Elmars ekki nóg gegn Færeyjum Gísli þakklátur fjölskyldu sinni: „Minn stærsti mentor í handboltanum og lífinu“ Átti erfitt með að grípa bolta skömmu fyrir sögulega frammistöðu Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Sjá meira