Ísland öruggt með sæti í efsta styrkleikaflokki í undankeppni HM 2013 Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. janúar 2012 14:00 Strákarnir okkar í leiknum gegn Slóveníu í gær. Mynd/Vilhelm
Þar sem Ísland er komið áfram í milliriðlakeppnina á EM í handbolta er ljóst að strákarnir okkar verða í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í undankeppni HM 2013. Ísland mun aldrei lenda neðar en í tólfta sæti en þrettánda sæti dugar til að komast í efsta styrkleikaflokkinn. Fjögur lið eru úr leik á EM í Serbíu og verða í öðrum styrkleikaflokki. Það eru Noregur, Tékkland, Rússland og Slóvakía. Í neðsta styrkleikafloknum verða þær sjö þjóðir sem komust áfram upp úr undankeppninni sem fór fram nú fyrr í mánuðinum. Þrjú efstu liðin á EM í Serbíu tryggja sér beinan þátttökurétt á HM í Spáni á næsta ári. Þar að auki hafa Spánverjar (gestgjafar) og Frakkar (heimsmeistarar) þegar tryggt sér þátttökurétt. Ef þær tvær þjóðir verða á meðal efstu þriggja liðanna á mótinu í Serbíu munu næstu lið á eftir fá HM-sæti. Það er því ljóst að fimmta sætið á EM í Serbíu mun mögulega gefa farseðil á HM á Spáni. Venjan er að draga í undankeppnina sama dag og úrslitaleikurinn á Evrópumeistaramótinu fer fram. Þess má geta að Patrekur Jóhannesson er þjálfari austurríska landsliðsins sem komst áfram upp úr sínum riðli í undankeppninni.1. styrkleikaflokkur: Sjö bestu þjóðirnar á EM sem ekki komast beint á HM á Spáni.2. styrkleikaflokkur: Noregur, Tékkland, Rússland og Slóvakía.3. styrkleikaflokkur: Austurríki, Bosnía & Hersegóvína, Hvíta-Rússland, Litháen, Svartfjallaland, Holland og Portúgal.Svona fer drátturinn fram: 1. Fyrst verður dregið úr 2. styrkleikaflokki. Tvö lið verða blindandi sett í 1. styrkleikaflokk en hinar tvær í 3. styrkleikaflokk. 2. Lið úr 1. og 3. styrkleikaflokki verða dregin saman. Þau lið mætast heima og að heiman í júní næstkomandi og sigurvegari viðureignanna fá þátttökurétt á HM á Spáni 2013.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira