Vukovic: Ísland mun ekki sakna Ólafs mikið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. janúar 2012 09:15 Drago Vukovic í leik með Lübbecke í Þýskalandi. Nordic Photos / Getty Images
Skyttan Drago Vukovic, einn besti leikmaður króatíska landsliðsins, segir að Ólafur Stefánsson sé frábær leikmaður en að Ísland muni standa sig vel án hans. Ísland og Króatía eru saman í riðli á EM í Serbíu og liðin mætast í fyrtu umferð riðlakeppninnar á mánudaginn. Króatar eru nánast á heimavelli enda nágrannar Serbíu. „Þetta verður erfiður opnunarleikur. Ísland er með mjög sterkt lið og marga leikmenn úr þýsku úrvalsdeildinni," sagði Vukovic við fjölmiðla í heimalandinu. „Liðið spilar mjög sterkan varnarleik með Guðjón Val Sigurðsson sem er frábær hraðaupphlaupsmaður." „Við verðum að halda við okkar leikskipulag og stjórna leiknum ef við ætlum okkur að ná í tvö stig." Ólafur Stefánsson missir af mótinu þar sem hann er nýkominn aftur af stað vegna meiðsla. „Hann er goðsögn þeirra Íslendinga. Hann hefur unnið marga leiki fyrir Ísland en Alexander Petersson hefur verið frábær með Füchse Berlin og getur fyllt í hans skarð. Íslendingar munu ekki sakna Ólafs mikið." Hann tjáði sig einnig um lið Slóvena og Noregs sem eru í sama riðli. „Við mættum Noregi á EM í Austurríki og það var erfiður leikur. Það má ekki vanmeta Norðurlandaliðin. Slóvenía er með ungt lið og afar metnaðargjarnt."
Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Sjá meira