Handbolti

Guðmundur: Sorglegt að fá ekkert út úr þessu

Henry Birgir Gunnarsson í Vrsac skrifar
Guðmundur var líflegur á hliðarlínunni í kvöld.
Guðmundur var líflegur á hliðarlínunni í kvöld. mynd/vilhelm
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var að vonum svekktur með tapið gegn Króatíu í kvöld enda lék hans lið mjög vel lungann úr leiknum.

"Ég er hálfsorgmæddur eftir að hafa spilað svona vel þetta lengi. Það er langt síðan ég hef séð íslenska liðið spila svona vel heilt yfir gegn jafn sterku liði. Þetta er frábært lið sem við vorum að spila við og þeir eru með alla sína menn heila. Það hefur ekki gerst lengi," sagði Guðmundur.

"Sóknarleikurinn var frábær nánast allan tímann og við fengum áfram dauðafæri eftir að þeir breyttu vörninni sinni. Við misnotuðum bara færin. Það er sorglegt er það gerist. Við fórum illa að ráði okkur þegar við erum manni fleiri. Þegar upp er staðið ráðast leikirnir á svona hlutum.

"Við gefum aðeins eftir varnarlega á köflum. Engu að síður þá erum við mjög nálægt þessu. Það er sorglegt að leiða leikinn í um 50 mínútur og fá ekki neitt fyrir. Ég held við getum tekið margt jákvætt úr leiknum engu að síður. Við tökum það með okkur í Noregsleikinn á miðvikudag."

Guðmundur viðurkennir að frammistaða liðsins í kvöld hafi verið betri en hann átti von á. Liðið er að sjálfsögðu án þeirra Ólafs Stefánssonar og Snorra Steins Guðjónssonar í fyrsta skipti í langan tíma.

"Að mörgu leyti erum við að spila betri bolta en ég átti von á. Ég sá Króatana rúlla upp Svíum fyrir mótið og taka Slóvakíu í kennslustund. Sóknarleikurinn var massífur og öruggur og varnarleikurinn einnig mjög góður."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×