Mikilvægt að kirkjan haldi vel utan um samkynhneigða 19. janúar 2012 12:15 Sigríður Guðmarsdóttir ætlar að gefa kost á sér til embættis biskups.
Séra Sigríður Guðmarsdóttir, sem hefur gefið kost á sér sem næsti biskup Íslands, segist vera umdeild innan Þjóðkirkjunnar. Nái hún kjöri ætlar hún aðeins að sitja í fimm ár. Sigríður er fyrsti presturinn sem gefur kost á sér eftir að séra Karl Sigurbjörnsson tilkynnti að hann myndi láta af embætti biskups í sumar. „Það sem rekur mig áfram er að ég tel að það sé þörf á allmiklum breytingum í Þjóðkirkjunni," segir Sigríður í samtali við fréttastofu. Hún segist ætla aðeins að sitja til skamms tíma ef hún nái kjöri. „Vegna þess að ég tel að breytingaskeið þurfi ekki að vera alveg endalaust, heldur ætla ég mér fimm ár í þær breytingar sem þurfa að verða á kirkjunni. Eftir það getur annar tekið við," segir hún.Þú talar um breytingar innan kirkjunnar, hvernig breytinar þá helst? „Breytingarnar sem eru kannski víðtækastar eru að hefja aftur sterkt samtal við þjóðina, bæði við þá sem tilheyra þjóðkirkjunni en líka allan almenning. Vegna þess að Þjóðkirkjan er sterkt og mikilvægt afl í samfélaginu. Og það sem mér finnst að þetta samtal eigi að vera um, er um trú og mannréttindi og hvernig það er að lifa í fjölbreyttu samfélagi, þar sem við erum einn hópur meðal annarra - reyndar mjög stór hópur. Svo finnst mér líka mikilvægt að við gerum upp það sem aflaga hefur farið á undanförnum árum. Þá nefni ég sérstaklega að mér finnst mikilvægt að kirkjan haldi vel utan um til dæmis samkynhneigt fólk og utan um þá sem hafa orðið fyrir kynferðisbrotun," segir Sigríður. Eftir að rannsóknarnefnd kirkjunnar skilaði af sér á síðasta ári þar sem fram kom gagnrýni á aðkomu séra Karls Sigurbjörnssonar að máli séra Ólafs Skúlasonar á sínum tíma, steig Sigríður fram og krafðist afsagnar séra Karls. „Um leið og maður tekur afstöðu, þá verður maður líka umdeildur," segir hún að lokum.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Sjá meira