Pavel með þrefalda tvennu í öruggum sigri Sundsvall Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. janúar 2012 19:52 Pavel Ermolinskij. Mynd/Vilhelm
Sundsvall Dragons átti ekki í miklum vandræðum með Jämtland Basket í Íslendingaslagnum í sænska körfuboltanum í kvöld. Sundsvall vann leikinn með 29 stigum, 107-78, eftir að hafa verið frumkvæðið allan leikinn. Sundsvall var þarna að vinna sinn sjötta heimaleik í röð en Drekarnir eru búnir að vinna 10 af 11 leikjum sínum í Sundsvall í vetur. Sundsvall vann fyrsta leikhlutann 19-13 og var með fimmtán stiga forskot í hálfleik, 48-33. Munurinn var síðan orðinn 22 stig í hálfleik, 76-54, og sigurinn því nánast í höfn hjá Sundsvall fyrir fjórða leikhlutann. Pavel Ermolinskij var með þrefalda tvennu í leiknum og er þetta í fyrsta sinn sem hann nær því í sænsku deildinni. Pavel var með 13 stig, 11 fráköst og 11 stoðsendingar í kvöld. Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði Sundsvall með 19 stig og 5 stoðsendingar og Hlynur Bæringsson var síðan með 16 stig, 8 fráköst og 4 stoðsendingar. Íslensku leikmennirnir í liði Sundsvall voru því saman með 48 stig, 20 fráköst og 20 stoðsendingar í leiknum í kvöld en með þessum sigri komst liðið upp að hlið Borås í 2. sæti deildarinnar. Brynjar Þór Björnsson skoraði 8 stig fyrir Jämtland en hann var einnig með 5 stoðsendingar og 5 villur. Þetta var í þriðja sinn á tímabilinu sem Sundsvall vinnur Jämtland.
Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira