Kári tryggði jafntefli á móti Pólverjum | Guðjón Valur með 13 mörk Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. janúar 2012 17:50 Kári Kristjánsson. Mynd/Stefán
Íslenska karlalandsliðið í handbolta gerði 31-31 jafntefli á móti Póllandi í kvöld í fyrsta undirbúningsleiknum sínum fyrir EM í Serbíu. Þetta var jafnframt fyrsti leikur landsliðsins á fjögurra þjóða æfingamóti, Total Kredit Cup, sem fram fer í Danmörku um helgina. Línumaðurinn Kári Kristjánsson skoraði jöfnunarmarkið af miklu harðfylgni eftir flottan endasprett íslenska liðsins en Pólverjinn Karol Bielecki átti síðan sláarskot úr aukakasti í lokasókn leiksins. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 13 mörk fyrir íslenska liðið og var langmarkahæstur. Aron Pálmarsson skoraði fimm mörk og þeir Kári og Alexander Petersson voru með fjögur mörk hvor. Krzysztof Lijewski skoraði 7 mörk fyrir pólska liðið og Karol Bielecki var með 5 mörk. Pólska liðið var með frumkvæðið frá byrjun leiks og var 17-11 yfir í hálfleik. Íslenska liðið lék mun betur í seinni hálfleiknum og náði hægt og rólega að vinna upp muninn. Pólverjar voru með þriggja marka forskot þegar fimm mínútur voru eftir en íslenska liðið vann lokamínúturnar 5-2. Þetta var fyrsti opinberi landsleikur liðsins síðan að liðið vann 44-29 sigur á Austurríki í júní og tryggði sér sæti á EM í Serbíu. Íslenska liðið spilaði reyndar við pressuliðið í byrjun nóvember. Ísland mætir Slóveníu á morgun og spilar síðan við Dani á sunnudaginn. Liðið mætir síðan Finnum í Laugardalshöllinni eftir viku sem verður síðasti æfingaleikur liðsins fyrir EM í Serbíu.Ísland-Pólland 31-31 (11-17)Mörk Íslands: Guðjón Valur Sigurðsson 13, Aron Pálmarsson 5, Kári Kristjánsson 4, Alexander Petersson 4, Arnór Atlason 2, Ingimundur Ingimundarson 1, Ásgeir Örn Hallgrímsson 1, Róbert Gunnarsson 1.Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 6 í fyrri hálfleik og Hreiðar Leví Guðmundsson 7 í seinni.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira