Viðskipti innlent

Risastór samningur við fyrirtæki í Kína

Samningurinn nú er sá þriðji sem fyrirtækið hefur náð á undanförnum árum en möguleikarnir eru gríðarlegir í þessu fjölmenna landi.mynd/marel
Samningurinn nú er sá þriðji sem fyrirtækið hefur náð á undanförnum árum en möguleikarnir eru gríðarlegir í þessu fjölmenna landi.mynd/marel
Fyrirtækið Marel gekk nýlega frá sölu fyrirtækisins í fiskiðnaði með samningum við fiskframleiðanda í norðausturhluta Kína. Um er að ræða nýja flæðilínu fyrir hvítfisk sem verður sérstaklega sniðin að þörfum kínverskra fiskframleiðenda.

Fjárhæð samningsins og nafn kínverska fyrirtækisins hefur ekki verið gefið upp en samningurinn samsvarar 1-2% af ársveltu Marel. Ef velta fyrirtækisins árið 2011 er höfð til hliðsjónar, um 700 milljónir evra, er samningurinn 1,1 til 2,2 milljarða króna virði. Flæðilínan er meðal þess hátæknibúnaðar sem Marel sýndi á sjávarútvegssýningunni í Brussel í síðustu viku.

Stella Björg Kristinsdóttir, markaðsstjóri Marel fyrir fiskiðnað, segir að aðeins sex mánuðir séu liðnir frá því að svipað kerfi var selt til kínversks framleiðanda og það sé til marks um að Marel hafi tekist að þróa vöru sem hentar kínverskum fyrirtækjum, en markaður tengdur fiskiðnaði í landinu er risavaxinn. Fyrr, eða árið 2006, seldi Marel kínverska matvælaframleiðslufyrirtækinu Pacific Andes upplýsingakerfi fyrir risaverksmiðju í Qingdao-héraði þar sem 13 þúsund manns starfa. Í héraðinu hefur Marel jafnframt byggt upp fiskiðnaðarsetur sem á heiðurinn að samningnum nú. Setrið mun gegna lykilhlutverki við uppbyggingu á starfsemi Marel í Kína þar sem miklu skiptir að viðskiptavinir hafi aðgang að þjónustu nálægt sínu starfssvæði.

„Í Kína byggjast viðskipti ekki síst á orðstír og það er erfitt að fá aðgang að þessum viðskiptavinum. Við höfum á undanförnum árum unnið að því að byggja upp nafn fyrirtækisins sem er að skila árangri,“ segir Stella Björg en aðalskrifstofa fyrirtækisins er í Peking. Hún segir jafnframt að aðstæður á vinnumarkaði og hækkandi framleiðslukostnaður í Kína hafi skapað aukna þörf fyrir sjálfvirkni í verksmiðjum þar í landi.

Auk Marels komu íslensku fyrirtækin 3X Technology og Skaginn að því að gera verkefnið að veruleika og landa stærsta einstaka samningnum sem fyrirtækið hefur gert í fiskiðnaði. „Við fengum í lið með okkur tvö íslensk fyrirtæki sem koma inn með sína sérþekkingu. Þetta er því stórt samvinnuverkefni og afar ánægjulegt að fleiri fyrirtæki komist að í svona viðskiptum.“ svavar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×