Viðskipti innlent

Þingmenn gefast ekki upp fyrir Seðlabankanum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Samstaða er um það í fjárlaganefnd Alþingis að reyna til þrautar að krefja Seðlabanka Íslands upplýsinga um það af hverju tekin var ákvörðun um að lána Kaupþingi 500 milljóna evra þrautavaralán örfáum dögum fyrir hrun bankans og hvernig staðið var að ákvörðuninni.

Að sögn Björns Vals Gíslasonar, formanns fjárlaganefndar, hefur Seðlabankinn í tvígang neitað að veita upplýsingar málið, en komið hefur fram að Seðlabanki Íslands á upptökur af samtali Davíðs Oddssonar, þáverandi seðlabankastjóra, og Geirs Haarde, þáverandi forsætisráðherra, þar sem þeir ræða forsendur lánsins.

Fjárlaganefnd fundaði í morgun með yfirlögfræðingi Alþingis þar sem rædd voru þau úrræði sem fjárlaganefnd hefur til að krefjast þessara upplýsinga. „Við viljum vita hvað þeim fór í milli," segir Björn Valur Gíslason.

Björn Valur segir að Seðlabankanum verði sent þriðja bréfið. „Eða að við munum grípa til einhverra annarra ráða sem tiltæk eru og rúmast innan heilbrigðrar skynsemi, til að fá vilja okkar fram. Það er eiginlega ófært annað," segir Björn Valur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×