Skoðun

Skapandi hugsun og verðmæti hennar

Vilborg Aldís Ragnarsdóttir skrifar
Skapandi hugsun getur átt stóran þátt í að marka stefnu í eigin lífi og starfi. Hún getur einnig hjálpað okkur að líta lengra en reynsla okkar nær og að bregðast á sveigjanlegan hátt við hinum ýmsu aðstæðum.

Þegar þessari aðferð er beitt getur það þýtt frekari vöxt og jafnvel verið lykillinn að velgengni, hvort sem um er að ræða vöruþróun, framleiðslu, markaðssetningu vöru eða þjónustu.

Að vera sýnilegurMarkaðssetning og söluaðferðir skipta miklu máli um velgengni fyrirtækis.

Mikilvægur þáttur í markaðssetningu vöru og þjónustu er að setja sér ákveðið markmið í upphafi um hvernig best er að kynna vöru. Hvernig og hvar er best að koma vöru í kynni við kaupanda? Merktu vöru þína. Það getur skilað sér í trausti kúnna á vöruna, einnig er þetta tiltölulega ódýr kynning til lengri tíma litið. Um leið og kúnninn fer að þekkja vöru/þjónustu þína og hvernig hún virkar leiðir það oftar en ekki til frekari sölu í áframhaldi. Því fleiri kaupendur, þeim mun betri kynning.

Það að taka þátt í viðburðum, s.s. málþingum, er öflug leið til þess að byggja upp tengslanet. Tengslanet er ómetanlegur þáttur í viðskiptalífi okkar; að þekkja rétta fólkið og taka þátt, fá fréttir af nýjungum o.fl.

Mikilvægt er að leita til fjölmiðla þegar markaðssetja á vöru. Auglýsing í réttum miðlum, kynningar og viðtöl hafa ótvíræð áhrif. Áhrifaríkust eru viðtöl þegar um mannlega greiningu á viðkomandi vöru er um að ræða. Samtöl við hönnuði, framkvæmdastjóra o.s.frv. um viðfangsefnið, sem verður að vera vel útskýrt á mannamáli, tilleiðsla og útfæring.

Bein markaðssetning gefur þér það forskot að fá ákveðin viðbrögð frá markhópum/kaupanda. Netsamskipti, símhringingar, kynningar eða sú aðferð sem færir þig nær viðskiptavini þínum er einnig stór þáttur í að auka umsvif.

Að auka viðskipti við núverandi kúnna gæti verið auðveldara en að afla nýrra viðskiptavina.Af hverju? Viðkomandi viðskiptavinur sem þekkir þínar vörur og hefur átt viðskipti er (ómeðvitað) sölumaður vöru/þjónustu þinnar. Mestu skiptir að veita góða og trausta þjónustu þeim sem skipta við þig því ef svo er kemur það vörunni til góðs með aukinni sölu í annarri vöru eða þeirri sömu sem fyrirtæki þitt framleiðir.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×