Skapandi hugsun og verðmæti hennar Vilborg Aldís Ragnarsdóttir skrifar 7. nóvember 2012 06:00 Skapandi hugsun getur átt stóran þátt í að marka stefnu í eigin lífi og starfi. Hún getur einnig hjálpað okkur að líta lengra en reynsla okkar nær og að bregðast á sveigjanlegan hátt við hinum ýmsu aðstæðum. Þegar þessari aðferð er beitt getur það þýtt frekari vöxt og jafnvel verið lykillinn að velgengni, hvort sem um er að ræða vöruþróun, framleiðslu, markaðssetningu vöru eða þjónustu. Að vera sýnilegurMarkaðssetning og söluaðferðir skipta miklu máli um velgengni fyrirtækis. Mikilvægur þáttur í markaðssetningu vöru og þjónustu er að setja sér ákveðið markmið í upphafi um hvernig best er að kynna vöru. Hvernig og hvar er best að koma vöru í kynni við kaupanda? Merktu vöru þína. Það getur skilað sér í trausti kúnna á vöruna, einnig er þetta tiltölulega ódýr kynning til lengri tíma litið. Um leið og kúnninn fer að þekkja vöru/þjónustu þína og hvernig hún virkar leiðir það oftar en ekki til frekari sölu í áframhaldi. Því fleiri kaupendur, þeim mun betri kynning. Það að taka þátt í viðburðum, s.s. málþingum, er öflug leið til þess að byggja upp tengslanet. Tengslanet er ómetanlegur þáttur í viðskiptalífi okkar; að þekkja rétta fólkið og taka þátt, fá fréttir af nýjungum o.fl. Mikilvægt er að leita til fjölmiðla þegar markaðssetja á vöru. Auglýsing í réttum miðlum, kynningar og viðtöl hafa ótvíræð áhrif. Áhrifaríkust eru viðtöl þegar um mannlega greiningu á viðkomandi vöru er um að ræða. Samtöl við hönnuði, framkvæmdastjóra o.s.frv. um viðfangsefnið, sem verður að vera vel útskýrt á mannamáli, tilleiðsla og útfæring. Bein markaðssetning gefur þér það forskot að fá ákveðin viðbrögð frá markhópum/kaupanda. Netsamskipti, símhringingar, kynningar eða sú aðferð sem færir þig nær viðskiptavini þínum er einnig stór þáttur í að auka umsvif. Að auka viðskipti við núverandi kúnna gæti verið auðveldara en að afla nýrra viðskiptavina.Af hverju? Viðkomandi viðskiptavinur sem þekkir þínar vörur og hefur átt viðskipti er (ómeðvitað) sölumaður vöru/þjónustu þinnar. Mestu skiptir að veita góða og trausta þjónustu þeim sem skipta við þig því ef svo er kemur það vörunni til góðs með aukinni sölu í annarri vöru eða þeirri sömu sem fyrirtæki þitt framleiðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar