Samkeppnisreglur eru mikilvægar Vilmundur Jósefsson skrifar 5. október 2012 00:30 Samtök atvinnulífsins hafa birt tillögur sem miða að því að skýra samkeppnislögin og bæta framkvæmd þeirra. Tillögurnar miða að auknu samstarfi stjórnvalda og atvinnulífs til að styrkja stöðu samkeppnisreglna. Tilgangurinn er að auðvelda fyrirtækjum að átta sig á inntaki laganna. Óskað er eftir almennum leiðbeiningum um hvernig unnt sé að meta hvort fyrirtæki hafi náð markaðsráðandi stöðu. Það er sjaldnast ljóst hvenær því marki er náð. Það getur verið háð því hvernig yfirvöld skilgreina markaði en fordæmi liggja sjaldnast fyrir. Er íslensk bókabúð í samkeppni við erlendar vefverslanir? Leiðbeiningar samkeppnisyfirvalda eru sérstaklega mikilvægar því íslensk fyrirtæki vilja síst af öllu brjóta samkeppnislög með álitshnekki og kostnaði sem því fylgir. Samkeppnislöggjöfin er mjög mikilvæg öllu atvinnulífinu til að þeir sem telja á sér brotið á markaði geti fengið skjóta úrlausn sinna mála. Það er ekki síður mikilvægt fyrir þá sem eru til rannsóknar. Annað meginefni tillagna SA er að samkeppnisreglur verði hér sambærilegar við það sem gengur og gerist á Evrópska efnahagssvæðinu. Af og frá er að halda því fram, eins og forstjóri Samkeppniseftirlitsins gerði á opnum fundi SA í vikunni, að Evrópureglurnar séu sniðnar að hagsmunum stórfyrirtækja. Hafa verður í huga að íslensk fyrirtæki eru langflest smá í erlendum samanburði. Það er ástæða til að hafa áhyggjur af því að forstjórinn virtist í orðum sínum leggja sérstaka fæð á það sem hann kallar stærri fyrirtæki sem vilji starfa í friði fyrir Samkeppniseftirlitinu og að Samtök atvinnulífsins dragi taum þeirra sérstaklega. Þessi orð eru fjarri öllu lagi, Samtök atvinnulífsins berjast fyrir hagsmunum allra fyrirtækja, stórra sem smárra. Samtökin gæta að hag fyrirtækja sem vaxið hafa og dafnað í samræmi við lög og rétt og gæta líka að því að óstofnuð fyrirtæki búi við sanngjarnar leikreglur sem samræmast því sem gengur og gerist í kringum okkur. Það er ástæða til að hafa áhyggjur af því hvað forstjóri Samkeppniseftirlitsins bregst illa við málefnalegum athugasemdum SA við samkeppnislögin og framkvæmd þeirra og spyrnir fast við fótum til að halda í séríslenskar reglur sem einungis geta orðið til að seinka nauðsynlegum efnahagsbata og koma í veg fyrir hraðari endurreisn atvinnulífsins. Hann virðist telja sig handhafa hins endanlega sannleika í málinu. Samtök atvinnulífsins hafa sett fram hógværar tillögur sem miða að því að samkeppnislög og framkvæmd þeirra verði svipuð og í samkeppnisríkjunum. SA vilja ræða við stjórnvöld um breytingar og munu fylgja málinu eftir. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samsköttun, samnýting eða skattahækkun? Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Á krossgötum í Atlantshafi Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Börnin fyrst – er framtíðarsýn Vestmannaeyja að fjara út? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Jólahugvekja trans konu Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Stóra myndin í fjárlögum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun Blessuð jólin, bókhaldið og börnin Kristín Lúðvíksdóttir skrifar Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson skrifar Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Bréfið sem aldrei var skrifað Grímur Atlason skrifar Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslensk ferðaþjónusta í nýju landslagi Ólína Laxdal skrifar Skoðun Sköpum öflugt, hafsækið atvinnulíf á viðskiptalegum forsendum! Gunnar Tryggvason skrifar Skoðun Hefurðu heyrt söguna? Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Teygjum okkur aðeins lengra Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Samtök atvinnulífsins hafa birt tillögur sem miða að því að skýra samkeppnislögin og bæta framkvæmd þeirra. Tillögurnar miða að auknu samstarfi stjórnvalda og atvinnulífs til að styrkja stöðu samkeppnisreglna. Tilgangurinn er að auðvelda fyrirtækjum að átta sig á inntaki laganna. Óskað er eftir almennum leiðbeiningum um hvernig unnt sé að meta hvort fyrirtæki hafi náð markaðsráðandi stöðu. Það er sjaldnast ljóst hvenær því marki er náð. Það getur verið háð því hvernig yfirvöld skilgreina markaði en fordæmi liggja sjaldnast fyrir. Er íslensk bókabúð í samkeppni við erlendar vefverslanir? Leiðbeiningar samkeppnisyfirvalda eru sérstaklega mikilvægar því íslensk fyrirtæki vilja síst af öllu brjóta samkeppnislög með álitshnekki og kostnaði sem því fylgir. Samkeppnislöggjöfin er mjög mikilvæg öllu atvinnulífinu til að þeir sem telja á sér brotið á markaði geti fengið skjóta úrlausn sinna mála. Það er ekki síður mikilvægt fyrir þá sem eru til rannsóknar. Annað meginefni tillagna SA er að samkeppnisreglur verði hér sambærilegar við það sem gengur og gerist á Evrópska efnahagssvæðinu. Af og frá er að halda því fram, eins og forstjóri Samkeppniseftirlitsins gerði á opnum fundi SA í vikunni, að Evrópureglurnar séu sniðnar að hagsmunum stórfyrirtækja. Hafa verður í huga að íslensk fyrirtæki eru langflest smá í erlendum samanburði. Það er ástæða til að hafa áhyggjur af því að forstjórinn virtist í orðum sínum leggja sérstaka fæð á það sem hann kallar stærri fyrirtæki sem vilji starfa í friði fyrir Samkeppniseftirlitinu og að Samtök atvinnulífsins dragi taum þeirra sérstaklega. Þessi orð eru fjarri öllu lagi, Samtök atvinnulífsins berjast fyrir hagsmunum allra fyrirtækja, stórra sem smárra. Samtökin gæta að hag fyrirtækja sem vaxið hafa og dafnað í samræmi við lög og rétt og gæta líka að því að óstofnuð fyrirtæki búi við sanngjarnar leikreglur sem samræmast því sem gengur og gerist í kringum okkur. Það er ástæða til að hafa áhyggjur af því hvað forstjóri Samkeppniseftirlitsins bregst illa við málefnalegum athugasemdum SA við samkeppnislögin og framkvæmd þeirra og spyrnir fast við fótum til að halda í séríslenskar reglur sem einungis geta orðið til að seinka nauðsynlegum efnahagsbata og koma í veg fyrir hraðari endurreisn atvinnulífsins. Hann virðist telja sig handhafa hins endanlega sannleika í málinu. Samtök atvinnulífsins hafa sett fram hógværar tillögur sem miða að því að samkeppnislög og framkvæmd þeirra verði svipuð og í samkeppnisríkjunum. SA vilja ræða við stjórnvöld um breytingar og munu fylgja málinu eftir.
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar
Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar
Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir skrifar
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun