Jón Gnarr fagnar komu Gaga Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. október 2012 11:36 Jón Gnarr borgarstjóri mun afhenda verðlaunin með Yoko Ono.
Jón Gnarr borgarstjóri fagnar því að Lady Gaga skuli fá LennonOno friðarverðlaunin. Eins og Vísir greindi frá í morgun mun Gaga koma til landsins í næstu viku til að taka á móti þeim. Jón segir að verðlaunin veki töluverða athygli í ákveðnum hóp fólks sem lætur sig varða friðar- og mannréttindamál í heiminum. „Og það þykir ákveðinn heiður að hljóta þessi verðlaun," segir Jón Gnarr. Hann segir að auk Lady Gaga muni móðir Rachel Corrie heitinnar, sem tók sér stöðu fyrir framan skriðdreka í Palestínu, koma til landsins auk eiginmanns einnar af þremenningunum úr Pussy Riot. Þá mun ekkja rithöfundarins og blaðamannsins Christopher Hitchens líka koma. „Þetta er rosalega flott frumkvæði og framtak hjá gömlu konunni að gera þetta," segir Jón um verðlaunin sem Yoko Ono setti á laggirnar til minningar um eiginmann sinn, John Lennon. Verðlaunin eru einmitt afhent á afmælisdag Lennons. Jón mun afhenda verðlaunin með Ono. „Ég tek þátt í því og tók þátt í því fyrir tveimur árum líka," segir hann. Hann segir að þetta hafi verið mjög hátíðleg stund í hitteðfyrra. „Þetta er mjög hátíðleg stund og falleg stund. Fólk tekur þessu mjög persónulega," segir Jón. „Svo er líka alveg frábært að þetta skuli fara fram í Reykjavík og við tengjumst þessu. Það er alveg frábært að taka þátt í einhverju svona metnaðarfullu og fallegu," segir Jón.
Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Sjá meira