Ólafur Stefánsson: Liðið er betur sett án mín Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. desember 2012 12:00 Mynd/Valli
Ólafur Stefánsson dró sig í gær úr íslenska landsliðshópnum í handknattleik. Reiknað hafði verið með því að Ólafur gæti spilað með liðinu á Spáni en nú er ljóst að ekkert verður af því. „Það eru allskonar hlutir sem koma að þessari ákvörðun. Sú helsta er sú að ég er einfaldlega ekki í nógu góðu líkamlegu formi til að spila á eins sterku móti og HM," segir Ólafur í viðtali við Sport.is. Ólafur heldur á nýju ári til Katar þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun hjá Lakhwiya Sports Club. „Ég hefði getað gúffað í mig allskonar pillum til að spila og ég hefði gert það fyrir málstaðinn. Það eru samt fleiri þættir sem að lokum gera það að verkum að ég tek þessa ákvörðun. Þegar allar ástæður eru farnar í hina áttina en að vera með þá verður þetta niðurstaðan," segir Ólafur í viðtalinu við Sport.is. Ljóst er að Alexander Petersson verður einnig fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Alexander lýsti því yfir í viðtali við Fréttablaðið á dögunum að tími Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar væri kominn. Ólafur er sammála. „Hingað til hefur Geiri verið backup fyrir mig og Alexander og hann hefur verið gríðarlega óeigingjarn á sína þátttöku á þessum stórmótum. Ég held að hann eigi eftir að koma allri þjóðinni og sjálfum sér á óvart á þessu móti. Það er oft þannig að maður spýtir í lófana þegar enginn er til að bakka mann upp og hann er einfaldlega það góður leikmaður að ég held að hann eigi eftir standa sig vel sem aðalmaður í þessari stöðu." Ólafur telur íslenska liðið betur sett án hans eins og staðan sé í dag. „Liðið er að mínu mati betur sett að hafa mig ekki eins og staðan er á mér núna og ég verð að vera heiðarlegur í því gagnvart mér og liðinu."
Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Uppgjörið: KR - ÍA 5-1| Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Manchester United - Manchester City | Baráttan um Manchester-borg Enski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Sjá meira