Hundruð milljóna í akstursgjöld árlega 5. september 2012 05:30 Bílar. Mynd/Stefán Karlsson
Ríkið hefur greitt rúmlega 1,6 milljarða króna í akstursgjald til starfsmanna sinna síðan árið 2010. Það ár voru um 655 milljónir greiddar út til meira en 5.000 ríkisstarfsmanna, en sú fjárhæð dróst saman árið eftir, þegar um 590 milljónir fóru í akstursgjald. Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu skal greiða starfsmönnum fyrir ferðir á eigin bíl með akstursgjaldi, en að öðru leyti er stofnunum óheimilt að greiða starfsmanni fyrir akstur. Þá skýra áhrif tilmæla ríkisstjórnarinnar til forstöðumanna um uppsögn aksturssamninga að stórum hluta að upphæð akstursgjalds lækkaði milli áranna 2010 og 2011. Síðan 1. júní síðastliðinn hefur akstursgjald miðast við 117 krónur á kílómetrann. Það var áður 111 krónur, en var hækkað miðað við vísitölu neysluverðs. Þetta þýðir til dæmis að einstaklingur sem keyrir fram og til baka til Akureyrar frá Reykjavík fær fyrir það tæpar níutíu þúsund krónur greiddar. Keyri starfsmaður meira en tvö þúsund kílómetra á árinu, er akstursgjald umfram það skattlagt sem tekjur. Sérstök ferðakostnaðarnefnd ákvarðar akstursgjaldið, sem er greitt til ríkisstarfsmanna vegna aksturs á eigin bifreiðum þegar þeir eru að sinna starfi sínu á vegum ríkisstofnana. Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), segir 117 krónur ekki hátt gjald, sér í lagi ef miðað sé við styttri vegalendir. „Ef þú ert að keyra innanbæjar tvo til þrjá kílómetra í hverri ferð, er þetta lítið," segir hann. „Hins vegar ef þú ert alltaf á langkeyrslu, sem fer betur með bílinn og kostnaður við allt er lægri, þá er hægt að líta öðruvísi á þetta." Samkvæmt töflu FÍB er árlegur rekstrarkostnaður nýrra bíla 55 krónur á kílómetrann upp í 117 krónur. Talan fer eftir eignarári, verðflokki og þyngd ökutækja. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Neytendur Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent