Lánið var í erlendum myntum 8. júní 2012 07:15 Íslandsbanka vegna eftirstöðva gjaldfallins skuldabréfs í erlendri mynt. Krafan var svo lækkuð í 12,4 milljónir. dómur hæstaréttar
Húsnæðislán Íslandsbanka í erlendri mynt eru ekki ólögmæt gengistryggð lán. Hæstiréttur staðfesti í gær niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands þar að lútandi í máli hjóna sem tekið höfðu slíkt lán hjá bankanum. Bankinn hafði höfðað mál á hendur hjónunum til greiðslu á eftirstöðvum gjaldfallins skuldabréfs, en deilt var um hvort lánið hefði verið í íslenskum krónum og gengistryggt með ólögmætum hætti, eða hvort það hafi verið í erlendum myntum. Fram kemur í dómnum að með vísan til heitis skuldabréfsins, tilgreiningar lánsfjárhæðarinnar og vaxta auk fyrirsagnar skilmálabreytingar hafi verið fallist á með bankanum að lánið hefði verið í erlendum myntum. Upphafleg greiðslukrafa bankans í mars 2010 hljóðaði upp á tæpar 22 milljónir króna. Bankinn breytti svo þeirri kröfugerð í þinghaldi fyrir Héraðsdómi Suðurlands rétt tæpu ári síðar í tæplega 12,4 milljónir króna. Um þá upphæð var ekki ágreiningur og hjónin því dæmd til að greiða hana með vöxtum. Íslandsbanki áréttaði í tilkynningu í gær að húsnæðislán bankans í erlendum gjaldmiðlum og erlend lán með veði í íbúðarhúsnæði hafi verið endurreiknuð og þar með gengið lengra en lög frá Alþingi kvæðu á um. Að fenginni þessari niðurstöðu Hæstaréttar nú væri ólíklegt að dómur Hæstaréttar frá 15. febrúar síðastliðnum í máli 600/2011 eigi við um húsnæðislán Íslandsbanka. Í því máli hafði lán í erlendri mynt ekki verið í vanskilum og því talið að erlendir vextir lánsins ættu að gilda, en ekki vextir Seðlabanka Íslands. „Íslandsbanki mun halda viðskiptavinum sínum vel upplýstum þegar búið er að yfirfara dóminn,“ segir í tilkynningu Íslandsbanka í gær. - óká
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Sjá meira