Olíuvinnsla skal háð ströngustu reglum 8. júní 2012 10:00 Olía brotnar hraðar niður í heitum sjó en köldum. Önnur staða og alvarlegri kæmi því upp ef olía lekur út norðan Íslands. fréttablaðið/ap
Olía verður ekki unnin á Drekasvæðinu fyrr en að uppfylltum ströngustu umhverfisreglum, og vinnsla mun ekki hefjast áður en allur nauðsynlegur öryggisbúnaður vegna mengunaróhappa er til staðar í landinu. Íslendingar geta búist við því að upp úr 2025 verði þrjú olíusvæði norðan Íslands; á Drekasvæðinu, út af Austur-Grænlandi, og við Jan Mayen. Íslensk stjórnvöld stefna að því að byggja upp þjónustu á Norðurlandi við öll olíusvæðin þrjú. Þetta kom fram í erindi Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra á morgunverðarfundi Arion banka um Drekasvæðið og hugsanlega olíuvinnslu Íslendinga. Össur er bjartsýnn á olíufund á Drekasvæðinu, en mestum tíma varði hann til að lýsa þeirri skoðun sinni að, þrátt fyrir lofandi efnahagsleg áhrif á íslenskt samfélag, þá skyldi umhverfið njóta vafans. „Það sem gerðist í Mexíkóflóa var stórslys. Slys af sömu stærðargráðu á einu af þessum þremur svæðum norðan Íslands yrði hins vegar slys af allt annarri og hrikalegri stærðargráðu.“ Össur útskýrði ástæðuna fyrir þessari fullyrðingu sinni. Í köldum sjó brotnar olía seint og illa niður og umhverfisáhrifin því mun meiri í okkar heimshluta. Fyrir Ísland er hættan sú sama, hvar sem slys yrði, þar sem straumrastir bera olíuna að ströndum Íslands óháð staðsetningu. Varðandi uppbyggingu þjónustu á Íslandi fyrir olíusvæðin þrjú upplýsti utanríkisráðherra að hann hefði þegar átt formlegar viðræður við Kuupik Kleist, forsætisráðherra Grænlendinga, um samstarf. Sömuleiðis hefði málið verið tekið nýlega upp í samræðum milli hans og Jonasar Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, og þeir orðið sammála um að taka málið upp í opinberri heimsókn Össurar til Noregs síðar á árinu. Össur leggur þunga áherslu á samvinnu þjóðanna þriggja en hann kvað það jafnframt farsælast fyrir Íslendinga, komi til vinnslu á Drekanum, að í framtíðinni verði settur á fót Auðlindasjóður að fyrirmynd Norðmanna, og sagði það sérstaklega nauðsynlegt til að tryggja að hugsanlegur afrakstur af olíuvinnslu á næsta áratug leiði ekki til ójafnvægis og ofhitnunar í íslenska hagkerfinu.svavar@frettabladid.is
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira